Síða 1 af 1

Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 29.des 2014, 17:36
frá bjsam
Sælir hvernig er best að ná tímareimarhjólinu ef sveifarás öxlinum til að skipta um pakkdósina fyrir innan hjólið? í 2,8l Patrol. Þarf að nota einhverskonar afdráttarkló?.Kv.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 29.des 2014, 19:45
frá Startarinn
Mig minnir að það hafi verið lítið mál, ég var allavega með túrbólausa útgáfu sem ég skipti um pakkdós á, það var ekki mikið vesen, ég rak líka slíf uppá ásinn útaf farinu í honum

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 29.des 2014, 19:54
frá Doddi ´I Eyvík
Þú snittar í götin á hjólinu og notar svo plötu til að draga það af. hitar smá helst með hitabyssu

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 29.des 2014, 22:16
frá bjsam
Ok.ætli ég þurfi að bora líka eða veistu hvaða stærð þetta getur verið kannski 5 m/m ???.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 29.des 2014, 22:50
frá Doddi ´I Eyvík
Þetta eru að mig mynnir 5mm göt passar 6mm þetta getur verið andstyggilega fast eða var það í mínu tilfelli

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 29.des 2014, 23:02
frá bjsam
takk fyrir þetta.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 30.des 2014, 08:38
frá birgiring
Ef það er olíuleki þarna, þá skaltu kanna vel hvort hann gæti komið með pakkningunni þar sem smurdælan boltast á blokkina (aftan við tímareimarhjólið). Þessi pakkning hefur stundum farið. Það er mjög svekkjandi að vera búinn að setja saman með nýrri pakkdós og lekinn er eins og áður.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 30.des 2014, 08:46
frá bjsam
Takk ég skoða það.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 31.des 2014, 18:24
frá bjsam
Jæja fylgdi góðum ráðum og snittaði í tímareima hjólið og smíðaði mér afdráttarkló á það og það losnaði eftir að ég hitaði það og tók vel á þessu ,sá svo að þetta hefur verið límt á ásinn ,er einhver þörf á því þar sem þetta er á kíl á ásnum?.Kv.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 31.des 2014, 18:44
frá villi58
bjsam wrote:Jæja fylgdi góðum ráðum og snittaði í tímareima hjólið og smíðaði mér afdráttarkló á það og það losnaði eftir að ég hitaði það og tók vel á þessu ,sá svo að þetta hefur verið límt á ásinn ,er einhver þörf á því þar sem þetta er á kíl á ásnum?.Kv.

Ástæðan fyrir því að það sé límt að það hafi verið full rúmt á ásnum, þrífa vel og skoða málin á þessu, prufa að máta fyrst því það má ekkert slag vera í þessu, bara passa.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 31.des 2014, 18:58
frá bjsam
Takk skoða þetta vel.

Re: Smá hjálp óskast frá ykkur Patrolsnillingar.

Posted: 31.des 2014, 21:41
frá Doddi ´I Eyvík
Ég límdi ekki hjólið hjá mér það smellpassaði smá stíft fyrst en rann svo uppá eftir að ég fór með grófa ull á ásin og innan í hjólið en flott mál að þetta gekk :)