Síða 1 af 1

5.2 gengur ekki

Posted: 21.des 2010, 19:36
frá Palli
sælir. var að klára að setja 5.2 í 97 dakotu hjá mér og hún fer í gang en gengur bara í 2-3 sek og deyr svo en ég get sett hana uppá snúning en deyr svo strax engin gaum ljós eða athugavert að sjá á mælum.
hún stóð í rúmt ár vélarlaus með tóman tank en allar lagnir voru blindaðar. en ég var að hugsa hvort þetta gæti verið eithver drulla í tanknum eða lögnum.
hefur einhver hugmynd hvað gæti verið að?

takk fyrir Kv. Páll

Re: 5.2 gengur ekki

Posted: 21.des 2010, 20:22
frá ellisnorra
Ofboðslega dettur mér þjófavörn í hug, ég lenti í nánast eins veseni með cherokee 4.0 '91 og þjófavarnaboxið þarf að vera með og senda eitthvað ákveðið merki til ecu boxins gegnum 2 víra. Skoðaðu þetta mjög mjög vel.

Re: 5.2 gengur ekki

Posted: 21.des 2010, 20:26
frá nobrks
Sammála, hljómar eins og kóðun á lykli sé í ólagi.

Re: 5.2 gengur ekki

Posted: 21.des 2010, 20:44
frá Palli
er hægt að kóða lykilinn uppá nýtt eða er maður fuckt?

Re: 5.2 gengur ekki

Posted: 21.des 2010, 23:23
frá ellisnorra
Á cherokee þá er hægt að tengja einn ákveðinn vír í jörð á þjófavarnaboxinu og þá slekkur það á því kerfi for good. Eða mig minnir að það sé svoleiðns allavega, skalt redda þér teikningum af þessu lúmmi og skoða þetta. Einnig er fullt af spjallborðum sem fjalla um svipuð eða eins mál.