Landvéla snúningshnén eða......


Höfundur þráðar
emmibe
Innlegg: 250
Skráður: 20.mar 2013, 08:43
Fullt nafn: Elmar þór Benediktsson
Bíltegund: ssangyong musso

Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá emmibe » 06.des 2014, 18:16

Sæl(ir), er að nota grænu snúningshnén frá Barka og það fyrsta fór í dag eftir kannski 400 km akstur. Það er ræfilslegur gúmmí O hringur inní þessu og hann gaf sig, þau eru heldur ekki mjög traustvekjandi það er slag í þeim nýjum. Man einhver hvað stóru Landvélahnén kosta? Komin góð reynsla á þau? Eru þessi stóru hné ekki bara málið eins líka hnén sem Guðni á Sigló er með? Eyða í þetta slatta af aur eða skipta bara reglulega um ódýru hnén?
1456 032.JPG
1456 032.JPG (31.98 KiB) Viewed 9258 times



Kv. Elmar


Elmar Þór Benediktsson
emmibe@gmail.com
SsangYong Musso E32


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá villi58 » 06.des 2014, 18:41

Landvélar eiga hné sem eru með legu og eru mun betri en kosta slatta, mundi frekar kaupa Snilla hné þau duga öruggla vel, með ásþétti og lokaðri legu.


Höfundur þráðar
emmibe
Innlegg: 250
Skráður: 20.mar 2013, 08:43
Fullt nafn: Elmar þór Benediktsson
Bíltegund: ssangyong musso

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá emmibe » 06.des 2014, 18:58

já var að sjá Snilla hnén, 8mm ryðfrítt rör. Verð kr. 7500 pr. stk. Vill hafa þetta 10mm en þetta er annsi dýrt finnst mér ;-) en endist væntanlega....
viewtopic.php?f=32&t=24437&p=134648&hilit=sn%C3%BAningshn%C3%A9#p134648
001.JPG
001.JPG (155.84 KiB) Viewed 9217 times
Elmar Þór Benediktsson
emmibe@gmail.com
SsangYong Musso E32


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá kjartanbj » 06.des 2014, 19:57

Landvéla hnén eru nú ekkert svo dýr, lítið dýrari en plast hnéin ef maður skoðar endingu
Getur líka keyrt hratt með þau á án þess að skemma þau
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-

User avatar

joningi
Innlegg: 31
Skráður: 18.mar 2011, 22:33
Fullt nafn: Jón Ingi Gunnsteinsson
Bíltegund: Nissan Patrol

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá joningi » 06.des 2014, 21:47

Það fást líka snúningshné með legu í Loft og raftæki í Kópavogi


Árni Braga
Innlegg: 690
Skráður: 02.feb 2010, 18:20
Fullt nafn: Árni Bragason

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá Árni Braga » 07.des 2014, 09:04

joningi wrote:Það fást líka snúningshné með legu í Loft og raftæki í Kópavogi

og þau endast mjög vel.
Árni Braga
sími 8953840
smidur@islandia.is


dors
Innlegg: 190
Skráður: 01.feb 2010, 22:32
Fullt nafn: Halldór Bogi Sigurððson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá dors » 07.des 2014, 13:06

Landvéla hnéin eru bara drasl endist ekkert miðað við snilla hnéin mín reynsla
kv Dóri


ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá ivar » 07.des 2014, 13:39

Hef prófað ódýru hnéin frá Barka og Landvélum og þar eru Landvéla hnéin áberandi betri. Hinsvegar gafst ég fljótlega upp og setti hné með legu frá Landvélum. Minnir að þau hafi kostað 6þ stk. Hef notað þau núna einn vetur og gefist vel.


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá villi58 » 07.des 2014, 14:44

Ekki vera eyða peningum í hnén frá Landvélum þegar Snilla hné eru margfallt betri, 7.500.- og margföld gæði.


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá kjartanbj » 07.des 2014, 23:09

hvað er að Landvéla hnénum.. hef aldrei heyrt um að þau seu að klikka áður
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-


grimur
Innlegg: 890
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá grimur » 07.des 2014, 23:20

7500 kall er varla fyrir efninu í þetta, hvað þá tíma á rennibekk.

Held að þessi útfærsla sé ansi fín hjá Snilla.

kv
G


sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá sukkaturbo » 07.des 2014, 23:25

Sælir drengir Snillahnéin eru sko úr gulli þið hljótið að sjá það og við notum þetta hér fyrir norðan. Hægt að saga þau niður í trúlofunarhringi þegar kreppan skellur á okkur árið 2017. koma svo

User avatar

sigurdurk
Innlegg: 240
Skráður: 14.apr 2011, 19:11
Fullt nafn: Sigurður Kári Samúelsson
Bíltegund: Toyota Land Cruiser
Staðsetning: Reyðarfjörður/Akureyri

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá sigurdurk » 07.des 2014, 23:44

Ég notaði nú bara plasthné úr landvélum, hræódýr og ómerkileg og keyrði á þeim allan veturinn seinasta og óhikað keyrt á 90-100 og nokkrum sinnum á milli akureyrar og reyðarfjarðar 300km með draslið í sambandi. þurfti aldrei að skipta um hné
Toyota Landcruiser HJ61 '89 44"[SKÁRRI]
VW Touareg 5.0 V10TDI '06
Dodge RAM 1500 '98 2H 4.0 turbo diesel 38-44"

User avatar

AgnarBen
Innlegg: 884
Skráður: 10.mar 2010, 10:30
Fullt nafn: Agnar Benónýsson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá AgnarBen » 08.des 2014, 00:21

Ég hef verið að nota ódýru Landvélahnén og þau hafa dugað ágætlega, eitt hné farið á einum og hálfum vetri og ég hef hingað til ekki séð ástæðu til að skipta þeim út fyrir dýrari hné. Svo eru Landvélar líka með dýrari hné (einhver nefndi 6 þús.kr) sem eru með legu en ég hef ekki prófað þau.
Agnar Benónýsson

Jeep Cherokee 39,5"
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=7300


ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá ivar » 08.des 2014, 14:51

kjartanbj wrote:hvað er að Landvéla hnénum.. hef aldrei heyrt um að þau seu að klikka áður


Já, ekki það að ég myndi gjarnan beina viðskiptum mínum til þín Guðni, en eru ekki dýru landvélahnéin "eins".

Minnir að það séu tvær legur, ytri og innri og pakkdós að utanverðu. Smíðað hérna heima á íslandi af einhverjum gauknum fyrir landvélar. Eina sem er að þeim er að þau eru 8mm en ekki 10mm.


Höfundur þráðar
emmibe
Innlegg: 250
Skráður: 20.mar 2013, 08:43
Fullt nafn: Elmar þór Benediktsson
Bíltegund: ssangyong musso

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá emmibe » 08.des 2014, 16:37

Eru þá báðar gerðir þessara (stóru) (dýru) snúningshnéa 8mm?
Elmar Þór Benediktsson
emmibe@gmail.com
SsangYong Musso E32

User avatar

Þráinn
Innlegg: 90
Skráður: 02.mar 2011, 19:34
Fullt nafn: Þráinn Ársælsson
Bíltegund: Chevrolet K2500
Staðsetning: Vík í Mýrdal
Hafa samband:

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá Þráinn » 08.des 2014, 16:44

landvélahnén

Image


Image


Arnar þ
Innlegg: 1
Skráður: 13.maí 2014, 20:59
Fullt nafn: Arnar Þór Hjaltason

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá Arnar þ » 08.des 2014, 22:20

Hvað er verðið á þessum

User avatar

MattiH
Innlegg: 477
Skráður: 21.jún 2010, 12:29
Fullt nafn: Matthías Hálfdánarson
Bíltegund: LC90

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá MattiH » 08.des 2014, 23:29

Það fást líka snúningshné með legu í Loft og raftæki í Kópavogi


Get alveg mælt með þeim, Kosta held ég 3000kr sirka og hafa reynst mér vel.
Toyota LC90 41" Irok


sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá sukkaturbo » 08.des 2014, 23:44

Sælir félagar það er bara að prufa þetta allt saman og taka svo ákvörðun eitt hné í hvert hjól og prufa sjá hvað endist best.


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá villi58 » 09.des 2014, 00:18

Ég held að góð lega og og gott ásþétti hafi alltaf yfirburði, ath. það er á markaðinum léleg ásþétti sem eiga ekki heima í svona hnjám og best að kanna hvað maður er að kaupa.
Ódýr hné hef ég ekki fundið nothæf, endar alltaf með að þau stífna og þá fer að snúast upp á slöngur, bara spurning um tíma enda ekki framleidd til að þola notkun í jeppa.


risinn
Innlegg: 195
Skráður: 22.des 2010, 21:09
Fullt nafn: Ragnar Páll Jónsson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá risinn » 09.des 2014, 02:30

Er það ekki bara reglan þeim meira sem þú borgar þeimum betri eru gæðin.
Það hlítur að vera lagt meira í vinnu og hónunun á dýrari hlutum þess vegna hljóta þeir að vera dýrari.

Kv. Ragnar.

User avatar

Gulli J
Innlegg: 168
Skráður: 22.mar 2010, 20:25
Fullt nafn: Guðlaugur Jónasson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá Gulli J » 09.des 2014, 06:47

Eftir að ég setti Landvélaleguhnén í hjá mér þá hef ég verið laus við öll vandamál, þau gömlu sem við vorum að nota gátu verið mjög mismunandi í endingu, hundleiðinlegt þegar þetta var að frjósa fast, festast og að snúast upp á slöngurnar.
Guðlaugur Jónasson
Jeep Grand Cherokee 2005 5,7L Hemi 33" Jeep 1
Jeep Grand Cherokee 1998 5,7L Hemi 46" Jeep 2

Enda sagði presturinn, ef það eru bílar í Himnaríki þá eru það Jeep Grand Cherokee.


Höfundur þráðar
emmibe
Innlegg: 250
Skráður: 20.mar 2013, 08:43
Fullt nafn: Elmar þór Benediktsson
Bíltegund: ssangyong musso

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá emmibe » 09.des 2014, 16:45

Endaði á að kaupa hné hjá Loft og Raftæki, þau eru 10mm 3/8 22mm haustak og passa í spangirnar sem ég er að nota virka líka traustvekjandi og létt að snúa þeim. Kosta um 5500kr stykkið en líst mikið betur á þau en svipuð hné í Landvélum sem kosta 4500kr. Prufa kannski stóru þegar þau eru orðin 10mm en Landvélar eru að spá í að búa svoleiðis til. Ég var spurður hvers vegna ég vildi bara 10mm en núna tekur það 6 mín að pumpa frá 2 pundum í 20 á 35" en 8mm hlýtur að flæða minna. Lögnin að kistu er 12mm.
Á myndunum er Loft og Raftæki Vinstramegin en hné sem ég fékk úr Barka hægramegin og entist 400km.
Kv. Elmar
IMG_5150.jpg
Loft og Raftæki Vs Barki
IMG_5150.jpg (54.74 KiB) Viewed 7999 times

IMG_5151.jpg
Loft og Raftæki Vs Barki
IMG_5151.jpg (53.46 KiB) Viewed 7999 times
Elmar Þór Benediktsson
emmibe@gmail.com
SsangYong Musso E32


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá kjartanbj » 09.des 2014, 18:11

ert þú ekki bara með lélega dælu? ég er enga stund að dæla fra 2psi upp í 20psi með Landvéla hnjánum í 39.5 dekk .. breytir engu um þessa 2mm finnst mer
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-

User avatar

jeepcj7
Innlegg: 1697
Skráður: 01.feb 2010, 08:46
Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
Bíltegund: F-250 Powerstroke
Staðsetning: Akranes

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá jeepcj7 » 09.des 2014, 18:38

Þú græðir nú varla mikið flæði með 10 mm hné og svo er kraninn inn á felguna td. líklega með 6 - 8 mm gat er það ekki?
Heilagur Henry rúlar öllu.


Höfundur þráðar
emmibe
Innlegg: 250
Skráður: 20.mar 2013, 08:43
Fullt nafn: Elmar þór Benediktsson
Bíltegund: ssangyong musso

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá emmibe » 09.des 2014, 18:57

Hef bara ekki hugmynd, þetta virkar bara fínt finnst mér eins og það er í dag.

kjartanbj wrote:ert þú ekki bara með lélega dælu? ég er enga stund að dæla fra 2psi upp í 20psi með Landvéla hnjánum í 39.5 dekk .. breytir engu um þessa 2mm finnst mer


Jú örugglega einhvað helv. drasl, engin stund finnst mér svakahratt :-) Hvar fær maður svoleis?
Síðast breytt af emmibe þann 09.des 2014, 19:01, breytt 1 sinni samtals.
Elmar Þór Benediktsson
emmibe@gmail.com
SsangYong Musso E32


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá kjartanbj » 09.des 2014, 19:01

ég er allavega ekki 6 mínútur að dæla í 4 stk 39.5" dekk upp í 20 psi úr 2psi , með reimdrifinni dælu
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-

User avatar

svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá svarti sambo » 09.des 2014, 22:35

emmibe wrote:Hef bara ekki hugmynd, þetta virkar bara fínt finnst mér eins og það er í dag.

kjartanbj wrote:ert þú ekki bara með lélega dælu? ég er enga stund að dæla fra 2psi upp í 20psi með Landvéla hnjánum í 39.5 dekk .. breytir engu um þessa 2mm finnst mer


Jú örugglega einhvað helv. drasl, engin stund finnst mér svakahratt :-) Hvar fær maður svoleis?


Engin stund, er sá tími sem líður frá 0 sek til 359 sek. Þannig að það er spurning hversu hratt þetta er.
Fer það á þrjóskunni


gundur
Innlegg: 16
Skráður: 04.jan 2012, 22:15
Fullt nafn: Guðmundur Guðmundsson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá gundur » 09.des 2014, 22:45

Sælir félagar, varast ber að bæta það sem fullkomið er.

kv. gundur

User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá Lindemann » 09.des 2014, 22:54

gundur wrote:Sælir félagar, varast ber að bæta það sem fullkomið er.

kv. gundur



Enda verður það ekki gaman þegar menn fara að finna eitthvað sem er fullkomið!
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá olei » 09.des 2014, 23:53

emmibe wrote:Endaði á að kaupa hné hjá Loft og Raftæki, þau eru 10mm 3/8 22mm haustak og passa í spangirnar sem ég er að nota virka líka traustvekjandi og létt að snúa þeim. Kosta um 5500kr stykkið en líst mikið betur á þau en svipuð hné í Landvélum sem kosta 4500kr. Prufa kannski stóru þegar þau eru orðin 10mm en Landvélar eru að spá í að búa svoleiðis til. Ég var spurður hvers vegna ég vildi bara 10mm en núna tekur það 6 mín að pumpa frá 2 pundum í 20 á 35" en 8mm hlýtur að flæða minna. Lögnin að kistu er 12mm.
Á myndunum er Loft og Raftæki Vinstramegin en hné sem ég fékk úr Barka hægramegin og entist 400km.
Kv. Elmar
IMG_5150.jpg

IMG_5151.jpg

Þessi plasthné eru ekki í sömu deild og smíðuðu snúningshnén sem eru með pakkdós og legu(m). Að borga 5500 kr fyrir þau er að mínu viti út í hött þegar hin kosta lítið meira. Látum vera þó líklega sé hægt að finna þau á ebay fyrir miklu lægra verð.

Í svona pumpusystemi - þegar verið er að pumpa dekk upp frá mjög lágum þrýsting yfir í keyrsluþrýsting þá er vanalega verið að dæla í öll dekkin í einu. Við þær kringumstæður er fráleitt að einhver munur sé á 4x 8mm lögnum eða 4x 10mm lögnum út í hjól - það er alltaf dælan sem er takmarkandi þátturinn. 4stk 6mm lagnir hafa leikandi undan öflugustu loftdælum sem þekkjast í jeppum. Ef þú ert að föndra við að breyta þrýstingi í einu dekki fyrir sig er það væntanlega lítilsháttar þrýsingsbreyting upp á 1-2 psi og þá skiptir aftur engu máli hvort þú ert með 6-8 eða 10mm lögn.

Það reynir frekar á þetta þegar verið er að hleypa úr, þú ert stopp í skafli á bullandi helgidagalofti (yfir 20 psi) og ferðafélagarnir eru við það að stinga af, kóarinn farinn að glotta og allt í hassi. Þá er vissulega gott að vera snöggur að hleypa úr. En 8mm lögn, 2metra löng tæmir t.d 42" dekk á innan við 2 mínútum síðast þegar ég mældi það -(frá 20 psi niður í 2psi). (birt án ábyrgðar, það er talsvert síðan en ég man ekki betur en þetta hafi verið 80 sekúndur fyrir 42" Goodyear á 14" breiðri felgu)

Persónulega mundi ég ekki hugsa mig um í þessari forgangsröðun og velja "alvöru" snúningstengi með legu og pakkdós. Plasthnén má e.t.v réttlæta með því að þau sé miklu ódýrari, en fyrir 5500 kall - aldrei.
Síðast breytt af olei þann 10.des 2014, 00:05, breytt 1 sinni samtals.


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: Landvéla snúningshnén eða......

Postfrá olei » 09.des 2014, 23:58

gundur wrote:Sælir félagar, varast ber að bæta það sem fullkomið er.

kv. gundur

Hér ertu væntanlega að vísa til innbyggða pumpusystemsins sem Ljónsstaðabræður smíðuðu í Land Cruiser 60 árið 1990 - eða var það 91?
Fyrstir manna á íslandi það ég best veit. Ég man vel eftir því, ég horfði yfir öxlina á nafna mínum þegar hann var að græja þetta og ferðaðist með þeim árum saman eftir þetta. Síðan þetta var hafa komið margar ódýrar eftirlíkingar. :)


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 32 gestir