LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?


Höfundur þráðar
Johnboblem
Innlegg: 228
Skráður: 11.nóv 2010, 09:04
Fullt nafn: Stefán Þór Sigfússon
Bíltegund: Defender 130

LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Johnboblem » 04.des 2014, 20:57

Er eitthver reynsla af þessu?

Má hafa þetta í aðalljósum?

Description

Features
1. 100% brand new style
2. High quality aluminum housing design for better cooling
3. Built-in fans with excellent heat dissipation performance
4. Beam Angle: 360 degree
5. Waterproof driver with internal constant current CPU
6. Usage: Headlamp
7. Two model: High and Low Beam
8. Provide over-heat and fans-failure setup protection
9. High Beam Current: 2.8A?±0.2A; Low Beam Current: 1.6A?±0.2A


Specification:
General
Model FH01
Wattage 60W
Emitter Type CREE-1520 COB LED
Emitters 2 crees
Lumens 2800lm
Light Color White Light
Color Temperature 6000K
Lighting Area 320 Degree
Voltage (V) DC 12V -24V
Sheathing Material Aluminum Alloy
Package Include
Package Contents 2 x Car Headlight
2 x Drive Power
Viðhengi
S-CMS-2260.jpg
S-CMS-2260.jpg (108.56 KiB) Viewed 5700 times




haffiamp
Innlegg: 269
Skráður: 21.jan 2012, 22:15
Fullt nafn: Hafþór Ægir Þórsson
Bíltegund: Terrano II 36"

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá haffiamp » 04.des 2014, 21:23

vinur minn hefur verið með svona í kösturum (þoku) á octaviu næstum 2 ár...

það er að vísu 20W hver pera sem er alveg nóg, hann segist geta keyrt með þá einungis útá vegi og er sáttur með það.
Svona 60W dæmi er eins og 150W venjulegar perur, færð aldrei að vera í friði með þetta grunar mig...

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Stebbi » 04.des 2014, 21:30

Mátt bara hafa þá peru sem framleiðandin gefur upp í ljósið. Ef að bíllinn kemur með H4 halogen peru þá er það eina peran sem þú ættir að fá skoðun á. Svo er þetta spurning hvort skoðunarmennirnir eru nokkuð að spá í þessu.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Höfundur þráðar
Johnboblem
Innlegg: 228
Skráður: 11.nóv 2010, 09:04
Fullt nafn: Stefán Þór Sigfússon
Bíltegund: Defender 130

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Johnboblem » 04.des 2014, 21:45

Takk fyrir þetta. Er með Defender sem væri ekki verra að myndi lýsa betur :)

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Sævar Örn » 04.des 2014, 22:42

Það er reyndar ekki rétt, það er ekki á herðum skoðunarmanna að sjá hvort notaðar séu upprunalegar perur, hinsvegar verða skoðunarmenn að fullvissa um að geisli ljóssins sé nógu bjartur, ekki of bjartur, og að stefna lýsingarinnar og brot hennar sé rétt fram á veginn, á milli 40 og 80 metra eftir bíltegundum og hleðslu

Til er hámark og lágmark yfir ljósmagn sem ég man ekki utan af hvað er, en flest þessi ljós eru annaðhvort nógu há eða allt of há, vandamálið er hinsvegar að þessi ljós lýsa út um allt, jú jú voða gott fyrir bílstjórann hann sér veginn voða vel og allt það, en sá sem mætir þér sér ekkert nema sólina úr ljósunum frá þér því geislinn er eins og móða sem lýsir jafn mikið niður á veginn og upp í loftið

svo er annar galli sem verður er að nefna og hann er sá að þessi ljós hitna ekki, og þvi bræða þau ekki af sér snjó og klaka í veðráttu eins og er núna t.d.

Eitt enn, þessi ljós eru fæst með háum geisla, sum eru þannig gerð að þau hækka voltatöluna frá magnaranum og auka þar með styrk geislans eitthvað en ekkert sem er marktækt

Þannig við verðum held ég að gefa þessum ljósum nokkur ár enn og bíða eftir því að bílaframleiðandi sýni þeim áhuga, þá fer þróunin á almennilegt skrið
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is


Rangur
Innlegg: 30
Skráður: 22.mar 2013, 09:29
Fullt nafn: Þorsteinn Þorsteinsson
Bíltegund: Range Rover

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Rangur » 04.des 2014, 22:59

Er ekki H4 pera bara H4 pera? Sé peran merkt H4 hlýtur að vera í lagi að nota hana?

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Sævar Örn » 04.des 2014, 23:08

H4 er standard fyrir perugerðina og var upphaflega kallað Halogen 4, LED er augljóslega ekki Halogen pera, ég gleymdi einu varðandi LED ljósin en þróunin undanfarið hefur nokkurnvegin einblínt á að ráða stigum við hitamyndun í LED ljósinu, ekki hita sem ljósið kastar frá sér enda er hann lítill eða enginn, heldur hita sem verður í tengibúnaði LED ljóssins sjálfs, það er eflaust hægt að lesa helling um þessar perur á netinu en þetta hefur ekki enn verið notað af bílaframleiðendum af neinu viti, allavega ekki í evrópu
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Haffi
Innlegg: 313
Skráður: 31.jan 2010, 23:01
Fullt nafn: Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Bíltegund: Toyhatsu Rocky

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Haffi » 05.des 2014, 00:25

Ég þekki einn sem er með svipað kerfi í gamalli corollu, þetta er búið að svínvirka hjá honum í tæpt ár og lýsir mun betur en glóperan. En auðvitað er þetta eins og með allt frá kínverjanum, sumt er gott, annað er rusl og sumt er mánudagseintök og annað ekki. "Gallinn" við þessi Cree LED er að þau hitna dáldið, en til þess er viftan á þessu, en ég held að það sé ekki neitt til að hafa áhyggjur af á íslandi þar sem er kæling á þessu allan ársins hring
Toyhatsu Rocky 38" - Kvekindið
Volvo 240, 740, S70 ofl


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá olei » 05.des 2014, 06:58

Þar sem ég þurfti að afleggja original aðalljósin á jeppanum (þau voru ekki nógu og utarlega) þá keypti ég þetta hér í þau og vonaðist eftir að fá öfluga lýsingu til að nota utan alfaraleiða.
http://www.ebay.co.uk/itm/271448379332? ... EBIDX%3AIT

Þetta lýsir meira en standard 55W H4 pera en það það munar ekki eins miklu og ég bjóst við. Reyndar grunar mig að að ljóskerin sem ég er með henti illa fyrir þær. Þau eru með blikkhlíf fyrir framan peruna og eru auk þess komin til ára sinna. Ljósker án blikkhlífar og gagnsærri (clear) mundu vafalítið henta þessum perum betur. Semsagt, þetta var ekki eins mikil framför og ég vonaðist eftir í gamlar samlokur!

Ég hendi hér inn hlekkjum af því að ég skoðaði þetta talsvert fyrir um ári síðan. Hér er t.d ódýrt ljósastæði fyrir 7" samlokur. Þetta er reyndar hálfgert dót og ekki sérlega traustvekjandi en virkar samt ágætlega. Ef marka má ebay þá er þetta mjög vinsælt í gamla Rovera.
http://www.ebay.co.uk/itm/390174239069? ... EBIDX%3AIT

Hér eru síðan nýjar samlokur, sem gætu e.t.v hentað fínt með svona LED perum:
http://www.ebay.co.uk/itm/WIPAC-CRYSTAL ... 5adfdb09fe
---------------------

Fyrir lögleg (DOT merkt) LED framljós í 7" sýndist mér Trucklite einna álitlegust, hér er eitt ódýrasta parið sem ég fann á ebay sem vill svo skemmtilega til að er einmitt sett í Land Rover.
http://www.ebay.co.uk/itm/181162435337? ... EBIDX%3AIT

Improve your light output with these 7" Round LED Headlamps with complex reflector optics! These advanced LED headlamps from Trucklite are the state of the art in LED lighting, providing crisp, bright LED light with low amp draw. These headlamp assemblies can replace most 7" round OE headlamps, including those in Jeep JK, TJ and CJ, Land Rover, etc... When properly mounted, exceeds FMVSS-108 and CMVSS-108 DOT requirements for low beam and high beam performance


Samkvæmt þessu þá valdi bandaríska trukkaleigufyrirtækið Penske að nota þessi ljós í sína bíla. Það er nú frekar traustvekjandi.
https://www.youtube.com/watch?v=riAtkFlEO98

---------------------------
Þessi eru mjög flott og er talsvert hampað af erlendum dellusnúðum. J.W Speaker:
http://www.ebay.com/itm/J-W-Speaker-054 ... d1&vxp=mtr

Eins og sjá má er þau nærri tvöfalt dýrari en Trucklite.


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá lecter » 05.des 2014, 17:39

ja en eini gallinn við led er þá kanski að snjór og ís bráðnar ekki af ljósinu kastarar eru þá ekki að virka i sumu færi eða þegar maður þarf virkilega á lósinu að halda (hitinn frá ljósinu bræðir ekki snjó og krapa)


Oskar K
Innlegg: 354
Skráður: 28.jún 2011, 00:28
Fullt nafn: Óskar Kristófer Leifsson

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Oskar K » 05.des 2014, 19:27

J.W. Speaker samlokur eru alveg málið í svona defender !

Image
1992 MMC Pajero SWB

User avatar

Steinmar
Innlegg: 63
Skráður: 02.aug 2013, 08:38
Fullt nafn: Steinmar Gunnarsson

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Steinmar » 05.des 2014, 19:47

Ef þarf hita til að bæða snjó og ís af ljósum, er það þá ekki vegna þess að hann hleðst á vegna hitamyndunar. Einhver hlutur sem er með sama hitastig og umhverfið safnar tæplega miklum klaka eða snjó á sig, ekki þá nema að snjórinn sé slydda, eða þarumbil.

Stundum keyrði maður með opna glugga og engan blástur á framrúðuna til koma í veg fyrir klakamyndun, það sama hlýtur að gilda fyrir ljósin.

Kv. Steinmar

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá Stebbi » 05.des 2014, 20:19

Þessar samlokur virðast lofa góðu. DOT merkt og klárlega ljós hannað fyrir ljósgjafan sem er í honum ekki Halogen ljós með einhverja über peru sem blindar alla sem maður mætir, en hey, virkar miklu betur en gömlu ljósin. :)

Fékk einn svona snilling á óbreyttun 120 cruiser á eftir mér um dagin með Xenon kit í stóru flottu toyota ljósunum, hann hefði alveg eins getað verið með 9" Hella kastara á eftir mér með 100w perum. Persónulega finnst mér að menn ættu ekki að fá skoðun á bílinn með svona lagað.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: LED í aðalljós. Eitthvað vit í því?

Postfrá kjartanbj » 05.des 2014, 20:26

óþolandi pakk sem keyrir um með xenon kerfi í halogen kerjum, margir keyrandi þannig um með bæði í aðaljosum og kösturum og halda að þeir seu ógeðslega kúl, en blinda alla sem þeir mæta og ljósið út um allt
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 27 gestir