Síða 1 af 1

Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 25.nóv 2014, 12:46
frá uoa
Er með 97 árg af Defender 110 38"breyttur komast 42"undir loftlæstur framan og aftan á góðum 38" MTZ dekkjum tveir loftkútar
loftdæla fullt af kösturum betri sæti búið að smíða allar hurðir upp nema eina, buið að smíða aftasta hlutann af grindinni upp er
málaður með trukkalakki 2013
Spurningin er hvað á maður að verðmeta svona fjallatrukk

Re: Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 25.nóv 2014, 13:43
frá joisnaer
Svona 1,3 myndi ég segja, keypti minn á 1.2 og hann er eins græjaður með nýjum hurðum. Eina sem er að er smá ryðgaður hvalbakur

Re: Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 27.nóv 2014, 21:06
frá Járni
Einhverstaðar á milli þyngdar sinnar í gulli og ómetanlegur.

Re: Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 27.nóv 2014, 21:45
frá Járni
Hann lítur gríðarlega reffilega út og þú segir að hann sé í fínu standi? Hvað er hann mikið ekinn?

Sjálfum finnst mér verðið sem hann Jóhann nefnir hér ofan full lágt (og þá fáranlega góð kaup hjá honum), miðað við hvað er sett á marga og hvað þeir seljast á.

http://bilasolur.is/SearchResults.aspx? ... 00b6b1ac2a

Hérna eru nokkrir, enginn akkúrat 97 árgerð en allir um og yfir 2 milljónir.

Re: Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 06.des 2014, 22:18
frá uoa
Hann er ekinn 230 þús km

Re: Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 06.des 2014, 22:36
frá risinn
Ég ætla ekki að vera leiðinlegur. En er þetta keyrsla á vél og boddýi eða bara vél ?
Mér fynnst þetta vera lítill akstur á þetta gömlum bíl. Það er bara þess vegna sem að ég er að spyrja.

Kv. Ragnar

Re: Hjálp með verðlagningu á Defender

Posted: 06.des 2014, 23:02
frá uoa
Hann er ekki ekinn meir en þetta ,sést á skoðunarvottorðum, þar sér maður km stöðuna í gegnum árin, en þetta er ekki mikill akstur það er rétt hja þer