Síða 1 af 1

Hvernig er best að breyta fjöðrun LC 90 aftan.

Posted: 09.nóv 2014, 19:59
frá atli haukur
Sælir og sælar.

Ég á '98 LC 90 á 33" og finnst mér hann leiðinlega hastur að aftan, það fer orðið frekar mikið í taugarnar á mér. Hafa menn verið að setja aðra gorma undir þessa bíla eða er ég óvenju snobbaður því ég átti pajero áður og líkaði vel við hann,

Einnig langaði mig að vita hvort millikassi úr 4runner geti passað undir cruiserinn svo ég losni við sídrifið.

Kær kveðja Atli Haukur.