Síða 1 af 1
Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 18.sep 2014, 18:48
frá RunarG
Góðan daginn, er eitthvað ódýrara að versla sér hlutföll að utan?
var að spá í hlutföllum í Nissan Patrol, 5.42 hlutföllin, finn bara ekki hvar hægt er að kaupa þau að utan?
eru þið með eitthverja síðu sem er að selja hlutföll og svona dót?
kv.Rúnar Þór
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 18.sep 2014, 19:21
frá villi58
Prufaðu Marlincrawler.com
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 18.sep 2014, 20:05
frá RunarG
sýnist þetta nú flest vera í Toyotu, allavega fann ég ósköp fátt í Patrolinn :/
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 18.sep 2014, 20:45
frá Ásgeir Þór
Sérð eitthvað um hlutfallaumræður í patrol hér :
viewtopic.php?f=23&t=9027er ekki bara gallinn að allt sem finnst í útlöndum í patrol kemur frá ástralíu og kostar allveg morðfjár að fá það til íslands....
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 18.sep 2014, 21:33
frá BragiGG
Getur fengið 5.13 hjá justdifferentials.com
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 19.sep 2014, 01:52
frá svarti sambo
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 06.okt 2014, 01:18
frá gummiwrx
5.13 af fyrrnefndri siðuni kostar hingað komið um 178.000 parið hingað komið með shopusa. Það er svo hár sendingakostnaður til islands að odyrara taka gegnum shopusa. Kostar 208þus ef flytur inn sjalfur.
En er 5.13 nokkuð nóg fyrir 44" ?
Á hinni síðuni er 5.43. En það er um 98þus stk fyrir utan sendingu og tolla svo það er þa odyrara að kaupa bara 5.42 her a islandi
Re: Kaupa drifhlutföll að utan.
Posted: 06.okt 2014, 08:06
frá ivar
sagt án ábyrgðar: Var ekki alltaf eh bras á þessum 5.13 hlutföllum. Minnir að menn hafi verið að prufa þetta og eh hluta vegna hafi þau verið að brotna.
Þetta er samt bara í þoku í minninu og gæti verið gott ef einhver segði betur frá.