Síða 1 af 1

Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 17:50
frá emmibe
Sæl öll, þetta fína skilti er við rætur Skrokköldu á Sprengisandi og liggur slóði þarna upp á hana. Nú spyr ég hver er með einhvað mastur og drasl þarna uppi og getur bara bannað manni að fara þarna? Einkavegur upp á miðju hálendi..............
DSC_1451.jpg
DSC_1451.jpg (138.39 KiB) Viewed 3784 times

Kv. Elmar

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 17:53
frá jongud
Ég held að sveitarfélagið og skipulagsyfirvöld innan þess geti takmarkað akstur á vegslóðum.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 18:42
frá Gulli J
Mig minnir að þú sért að fara þarna á eiginn ábyrgð og þá ótrygður. Annars er ágætis útsýni þarna uppi og lítið eftirlit. það er skúr þarna með ljósavél og loftnetum. Einn félagi minn fer alla svona slóða og hann sagði að það væri einstaklega gaman að fara líka upp á Búrfellið fyrir ofan Búrfellsvirkjun.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 19:18
frá Brjotur
Eg held nu að þetta mastursrugl eins og þu kallar það se þer og öðrum til hjalpar, hef tru a að þetta tengist talsambandi :)

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 19:31
frá Fordinn
Búrfellið er allavega mjog bratt á kafla.... þýðir engan klaufaskap á leiðinni þar upp =)

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 20:14
frá Kiddi
Þessi skilti eru þarna til þess að þeir sem bera ábyrgð á því að vegurinn sé þarna beri ekki ábyrgð ef þú ferð þér að voða þarna. Það er þá væntanlega eitthvert orku- eða fjarskipta fyrirtækið í þessu tilfelli.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 20:36
frá emmibe
Brjotur wrote:Eg held nu að þetta mastursrugl eins og þu kallar það se þer og öðrum til hjalpar, hef tru a að þetta tengist talsambandi :)

Drasl Brjótur ekki rugl....annars er nú Kvíslaveituvegurinn MIKIÐ hættulegri vegna ástands en þessi smá brekka þarna upp.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 20:43
frá Kiddi
Kvíslaveituvegurinn er í tómu tjóni og mikið þægilegra að fara gömlu Sprengisandsleiðina, maður er þá ekki stressaður að týna bílnum í úrrennsli. Þetta eru nú allar samgöngubæturnar sem fást með virkjanaframkvæmdum...

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 17.sep 2014, 22:57
frá Lindemann
Ég þekki ekki ástæðuna fyrir þessu skilti þarna en það er samt alveg skýrt hvað það þýðir og það er allur akstur bannaður.
Þá er ekkert verið að tala um á eigin ábyrgð eða ekki, sama og þegar hálendisvegir eru lokaðir á vorin, þá eru svona skilti notuð.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 18.sep 2014, 11:34
frá aae
Það eru nú flestir starfsmenn einhversstaðar er það ekki?
En án gríns, þetta er þörf umræða, og gott væri að vita hvort einhver hefur verið kærður fyrir að keyra slóða sem er með svona skilti og hver útkoman hefur verið úr því. Þetta eru væntanlega veitufyrirtækin sem eru að drita þessu niður við slóða sem hafa verið opnir almenningi og örugglega lagðir á sínum tíma fyrir almannafé. Yfirleitt er maður að keyra þessa slóða með fjölskylduna í bílnum og því miður eru ekki allir alltaf sammála um að keyra bara fram hjá og láta eins og þessi skilti séu ekki þarna...

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 18.sep 2014, 11:44
frá Ofsi
Þessi mál hafa verið tekin fyrir á fundum (oftar en einu sinni) sem við í f4x4 höfum átt með Landsvirkjunarmönnum. Okkur jeppakörlum er velkomið að aka þessa vegi.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 18.sep 2014, 12:09
frá jongud
Ofsi wrote:Þessi mál hafa verið tekin fyrir á fundum (oftar en einu sinni) sem við í f4x4 höfum átt með Landsvirkjunarmönnum. Okkur jeppakörlum er velkomið að aka þessa vegi.


Gæti það samt ekki verið varasamt núorðið þegar hætta er á að einhver túristaaulinn reyni að elta mann upp á Yaris?
Það myndi líka sýna aulanum fordæmi fyrir því að hundsa svona skilti.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 18.sep 2014, 19:57
frá Lindemann
Ofsi wrote:Þessi mál hafa verið tekin fyrir á fundum (oftar en einu sinni) sem við í f4x4 höfum átt með Landsvirkjunarmönnum. Okkur jeppakörlum er velkomið að aka þessa vegi.


Það getur samt verið dálítið villandi þar sem þetta er sama skilti og annarsstaðar þar sem er bannað að aka.
Menn vita ekki alltaf hvort það sé "allur akstur bannaður" til að vanbúnir bílar séu ekki að þvælast vegina eða vegna þess að vegagerðin er að hlífa vegum fyrir skemmdum(menn eru nú sektaðir fyrir að aka slíka vegi)

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 18.sep 2014, 22:36
frá risinn
Bara svona smá vanga velting.
Vantar okkur ekki bara að fá superjeep only skilti á slóða og inn á kort vegageriðinar ??? Bara svona vanga veltingar hjá mér.
Þetta væri hægt að nota allt árið þegar að vegagerðin er með allt lokað. Nema að sjálfsögu á vorin þegar að frost er að fara úr jörðu og allt er í aurbleytu.

Kv. Ragnar.

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 19.sep 2014, 06:04
frá cameldýr
risinn wrote:Bara svona smá vanga velting.
Vantar okkur ekki bara að fá superjeep only skilti á slóða og inn á kort vegageriðinar ???

Hvað er superjeep? Hvernig er svoleiðis skilgreint?

Re: Bannað að fara upp á þennan hól.........

Posted: 19.sep 2014, 20:27
frá Stebbi
Allir jeppar sem ég á eru SuperJeep þannig að mér finnst þetta frábær hugmynd. Svo á ég nátturlega alltaf bestu jeppana og er lang bestur að jeppast þegar ég má vera að því. :)