Síða 1 af 1
Bensínleiðslur
Posted: 10.sep 2014, 18:33
frá StebbiHö
Góðan daginn.
Hvar er best að finna bensínleiðslur í 1/4" eða 8mm? Og hvaða gerð er best að taka í þessu, þarf að fæða 400+ hross.
Kv Stefán
Re: Bensínleiðslur
Posted: 10.sep 2014, 18:51
frá JeepKing
Ef þú ert á Akureyri... þá er það Straumrás Furuvellir 3
Re: Bensínleiðslur
Posted: 10.sep 2014, 18:56
frá baldur
Stilling eða Bílanaust.
Re: Bensínleiðslur
Posted: 10.sep 2014, 19:56
frá Aparass
Barki og landvélar
Re: Bensínleiðslur
Posted: 11.sep 2014, 10:50
frá baldur
Já og annað, ég myndi ekki kaupa "bensínslöngur" sem stendur ekki á benzina eða fuel injection eða eitthvað annað sem gefur sérstaklega til kynna að þetta sé fyrir bensín.
Landvélar selja þér gjarnan eitthvað sem stendur á "fuel & oil" en þar er fuel = hráolía og þær slöngur þola alls ekki bensín, það tekur sirka ár að éta sig í gegn um gúmmíið.
Re: Bensínleiðslur
Posted: 11.sep 2014, 20:50
frá Kristinn
Farðu í Barka í kópavogi og fáðu slöngu sem heitir DIN1TE 8mm hún þolir allar olíur og vökva , eða vertu í bandi ég á þetta yfirleitt altaf til Kv Kristinn S:893-7616
Re: Bensínleiðslur
Posted: 12.sep 2014, 05:20
frá StebbiHö
Takk fyrir þetta strákar, einmitt það sem ég var svona að leita eftir, hvort það væri nokkuð sama hvaða slöngur væru notaðar. Þurfti víst að hendast á sjóinn og hef því ekki tíma akkurat núna í þetta en ef ég fæ ekki í Barka eða annarsstaðar einmitt fyrir benzin eð fuelinjeciton þá fæ ég kanski að slá á þráðinn til þín Kristinn.
Kv Stefán
Re: Bensínleiðslur
Posted: 12.sep 2014, 08:48
frá ellisnorra
Svo er líka spurning um að nota plaströr, hvað segja menn um það? Sama og menn nota í loftbúnaðinn hjá sér.
Re: Bensínleiðslur
Posted: 12.sep 2014, 10:13
frá baldur
elliofur wrote:Svo er líka spurning um að nota plaströr, hvað segja menn um það? Sama og menn nota í loftbúnaðinn hjá sér.
Já þau þola öll efni. Ég nota þau frekar en slöngur. Nylon rörin eru alveg efnaþolin, polyurethane sem eru aðeins mýkri virðast hleypa einhverju inn í sig og verða ögn mýkri í bensíni.