Síða 1 af 1

sælir félagar hiluxinn með vesen vantar hjálp

Posted: 05.aug 2014, 21:59
frá sigurbjorningi
Sælir var að velta fyrir mér hvort einhver ykkar sé með lausn á þessu vandamáli !
Fór í ferð á honum um helgina þá byrjaði eitthvað að snuða líkt og kúplinginn væri að fara nema á t.d. 90 km hraða á jafnsléttu ýtti ég létt aukalega á bensíngjöfina þá fer bara mótorinn að snúast (snuða) en ekki drifið að taka í ,slæ af gef svo betur í þá er allt í góðu. Og allt í besta ef hann er botn stíginn hehe svo hann var bara í botni. (21 árs 2,4 bensín á 36" á 100 km í botni. Takk fyrir

Re: sælir félagar hiluxinn með vesen vantar hjálp

Posted: 05.aug 2014, 22:21
frá sukkaturbo
Sæll mér finnst þetta vera teng kúpplingunni eða þrælnum. Einnig mundi ég skoða braketið undir mælaborðinu mjög vel með góðu ljósi og athuga hvort það sé byrjað að brotna. kveðja guðni

Re: sælir félagar hiluxinn með vesen vantar hjálp

Posted: 05.aug 2014, 22:33
frá sigurbjorningi
Sæll Guðni ætla að skoða það takk fyrir þessa athugasemd

Re: sælir félagar hiluxinn með vesen vantar hjálp

Posted: 06.aug 2014, 00:23
frá Fordinn
Hef þurft að láta sjóða upp svona brakket i hilux sem ég átti.... komst af þvi eftir að eg skipti um kúpplingu =)

Re: sælir félagar hiluxinn með vesen vantar hjálp

Posted: 06.aug 2014, 10:44
frá sigurbjorningi
sælir braketið undir mælaborðinu lítur út eins og nýtt skoðaði það vel og vandlega þá er það bara kúplingin og þrællinn næst :) takk aftur

Re: sælir félagar hiluxinn með vesen vantar hjálp

Posted: 06.aug 2014, 11:05
frá biturk
diskur að verða búinn hjá þér sennilega eða pressa orðin slöpp

þin bíður örlítið rifrildi sennilega :)