Síða 1 af 1
V8 bensinvelar eru málið
Posted: 25.nóv 2010, 20:54
frá gambri4x4
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 25.nóv 2010, 23:27
frá Járni
Lagaði fyrir þig tengilinn, það vantaði h fremst.
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 26.nóv 2010, 09:44
frá Óskar - Einfari
Jú moggin er að ljúga núna....
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 26.nóv 2010, 16:50
frá Stebbi
Mogginn wrote:Bandarísku vísindamennirnir komust m.a. að þeirri niðurstöðu, að bandarískur Jeep Wrangler með V8 vél, sé einn grænasti bíll sem til er.
Þetta eru engar fréttir fyrir flesta sem hafa lokið barnaskólanámi, það vita það allir heilvita menn að JEEP er heimsins besti bíll. Gott að þetta er vísindalega sannað þá þarf ekkert að ræða það meir.
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 26.nóv 2010, 17:15
frá Kiddi
Þetta meikar alveg fullkomið sense, bara spurning um að reikna dæmið frá upphafi til enda. Til dæmis í Prius þá eru efni í rafgeymana flutt heimshornanna á milli og það eitt og sér mengar töluvert þannig að þegar upp er staðið þá er einfaldi bensínhákurinn umhverfisvænni.
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 26.nóv 2010, 19:02
frá arnisam
Nú skal jörðinni bjargað!!!! Á ekki einhver sleggju í Wranglerinn minn ???? :D
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 26.nóv 2010, 19:32
frá jeepson
Stebbi wrote:Mogginn wrote:Bandarísku vísindamennirnir komust m.a. að þeirri niðurstöðu, að bandarískur Jeep Wrangler með V8 vél, sé einn grænasti bíll sem til er.
Þetta eru engar fréttir fyrir flesta sem hafa lokið barnaskólanámi, það vita það allir heilvita menn að JEEP er heimsins besti bíll. Gott að þetta er vísindalega sannað þá þarf ekkert að ræða það meir.
auðvitað vita menn þetta. En sumir eru bara í afneitun :) En það er einmitt langt síðan að mér var sagt að wrangler væri grænasti bíllinn sem til er. enda er fátt í honum þannig að það kostar ekki mikið að farga honum :)
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 26.nóv 2010, 20:13
frá steinarxe
tsss hefði haldið að Lada sport væri málið miðað við þetta ,bandarísku snillingarnir gleyma henni!
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 27.nóv 2010, 00:33
frá Stjáni Blái
Að sjálfsögðu mengar þetta V8 rusl minna því að þegar upp er staðið er þetta notað ansi lítið. Og/eða bilað.
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 27.nóv 2010, 00:47
frá steinarxe
hehehe góður punktur,eilítið þykkir í hausnum stundum blessaðir kanarnir.
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 27.nóv 2010, 22:53
frá viddi
Eehhmmm... Er þetta ekki soldið gömul frétt.. Tækni & vísindi | mbl.is | 7.9.2007 | 08:27
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 28.nóv 2010, 14:00
frá Stebbi
jeepson wrote: En það er einmitt langt síðan að mér var sagt að wrangler væri grænasti bíllinn sem til er. enda er fátt í honum þannig að það kostar ekki mikið að farga honum :)
Í V8 Wrangler er bara akkúrat það sem þú þarft. Stór vél, lítill tankur og tuska yfir hausinn á manni. Það er alveg ástæðulaust að vera að flytja ónýtt geymslupláss með sér um hálendi íslands. Ég legg til að allt Patrol og krúserdralsið verði selt úr landi og fluttir inn Wranglerar í stórum stíl og sækjum svo um græna svaninn á jeppamenskuna. Miljö miljö.

Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 29.nóv 2010, 17:34
frá arntor
teku undir með steinarxe. ladan ætti ad vera á toppnum, rússunum hefur alltaf tekist ad framleida bíla sem farga sér sjálfir, bodyin eru yfirleitt horfin á þeim tíma sem þeir fara á haugana;)
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 29.nóv 2010, 18:20
frá jeepson
Stebbi wrote:jeepson wrote: En það er einmitt langt síðan að mér var sagt að wrangler væri grænasti bíllinn sem til er. enda er fátt í honum þannig að það kostar ekki mikið að farga honum :)
Í V8 Wrangler er bara akkúrat það sem þú þarft. Stór vél, lítill tankur og tuska yfir hausinn á manni. Það er alveg ástæðulaust að vera að flytja ónýtt geymslupláss með sér um hálendi íslands. Ég legg til að allt Patrol og krúserdralsið verði selt úr landi og fluttir inn Wranglerar í stórum stíl og sækjum svo um græna svaninn á jeppamenskuna. Miljö miljö.

Ég er nú ekki alveg sammála þessu. wranglerinn er kanski fyll lítill fyrir mig. Ekki að ástæðulausu sem að ég fékk mér patrol. en hinsvegar er nú ekkert að því að eiga einn wrangler með pattanum.
Re: V8 bensinvelar eru málið
Posted: 29.nóv 2010, 19:02
frá gambri4x4
arntor wrote:teku undir með steinarxe. ladan ætti ad vera á toppnum, rússunum hefur alltaf tekist ad framleida bíla sem farga sér sjálfir, bodyin eru yfirleitt horfin á þeim tíma sem þeir fara á haugana;)
hahahahaha gat ekki annað en hlegið upphátt af þessu :)