Síða 1 af 1

Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 18:29
frá stjanib
Sælir

Hvar getur maður fengið kíl eða crankshaft key í tommum. Er búinn að tala við þá helstu semsagt fossberg, fálkann, ljónin, benna og klett en það var bara til i mm í fossberg. Mig vantar svona kíl í breidd 3/16 og lengd 3/4

Kv

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 19:13
frá flækingur
prufaðu að tala við þá sem þjónusta skip og báta. til dæmis framtak, slippinn í njarðvík og orm og víglund.
gangi þér vel með þetta.
svo er hægt að láta smíða ef illa gengur að finna þetta.

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 19:21
frá grimur
Helst að fá þetta sent á hótel eða aðra addressu hjá einhverjum sem er að koma frá USA.

Fann svona út um allt með google, þetta er kallað Woodruff key:
http://www.amazon.com/Hillman-Fastener- ... B008AY4Z1S

Veit ekki um hardware búð sem sendir til íslands, en held að Amazon sendi hingað samt....má allavega reyna ef sendingarkostnaður er ekki út í hött.

kv
G

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 19:50
frá svarti sambo
Prufaðu Landvélar, Barka og wurth. Mig minnir að ég hafi einhvertímann séð þetta hjá wurth, en ég veit ekki hvort að þeir séu með þetta í tommum. einnig er þetta mikið notað í spildælum og rafmagnsmótorum, og þá gæti verið sjéns á rafvélaverkstæðum, eins og rafboða eða kannski rafstillingu. Svo getur vel verið að ég eigi þetta til, þarf þá bara að fara og leita. Einnig getur þú prófað framtak eða héðinn.

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 21:34
frá MattiH
Var þetta ekki til hjá Poulsen ?

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 22:14
frá stjanib
Þakka fyrir svörin og ábendingarnar, mun athuga hina staðina..

Eins og þú segir grímur þá er þetta til úti, var búinn að ath það en það er dáldið fáranlegt að borga 2-5 dollara fyrir kílinn og svo 40-60 dollara í sendingakostnað þá er þetta orðinn dáldið dýrt þegar að mm kíllinn kostar hjá fossberg 150kr :)

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 08.júl 2014, 23:31
frá Jónas

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 09.júl 2014, 02:46
frá jeepson
Jeppasmiðjan á ljónsstöðum gæti átt þetta.

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 09.júl 2014, 14:26
frá grimur
40 til 60 dollarar.
Meira ruglið.
Eins og það er ódýrt og þægilegt að senda drasl með FedEx innan USA, þá hentar það bara alls ekki út fyrir USA.
Það er eitthvað sem kanarnir þyrftu að læra, en munu aldrei gera.
Kínverjarnir eru alveg með þetta(AliExpress).

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 09.júl 2014, 21:23
frá Óttar
Ef mm kíllinn er aðeins yfir því sem þig vantar gætir þú látið planslípa hann í málið

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 10.júl 2014, 12:45
frá stjanib
Búinn að redda þessu, pantaði þetta frá UK eins og Jónas benti á. Mér var bent á planslípunina eftir að ég pantaði Óttar, allavega veit maður að því núna.

Ég þakka fyrir hjálpina....

Re: Hvar fær maður Kíl (crankshaft key)

Posted: 10.júl 2014, 20:07
frá S.G.Sveinsson
Ef þér vantar svona seina meir eða eithverjum öðrum þá minnir mig endilega að það hafi verið til sett með tommu kílum í VB Vörumeðhöndlun (á verkstæðinnu ekki búðinni) og þa´er bara að spjalla við eithvern af köllunum á verkstæðinu og fá þetta fyrir klínk. Þeir erum uppá jarnhálsi í götunni fyrir ofan frumherja og nóa.