Brotinn stýrislás


Höfundur þráðar
Rodeo
Innlegg: 74
Skráður: 01.aug 2012, 01:01
Fullt nafn: TUMl TRAUSTAS0N
Bíltegund: Ford Explorer
Staðsetning: Alaska

Brotinn stýrislás

Postfrá Rodeo » 30.jún 2014, 07:54

Vona að mér fyrirgefist smá fólksbíla spurning (2008 toyota prius) þar sem það var nú jeppi sem átti sök á þessu.

Lenti í smá óhappi í heimreiðinni. Explorerinn tók ekkert eftir netta Priusnum svo þeir nudduðust aðeins saman þegar verið var að bakka jeppanum út. Tekur varla að minnast á smá nudd á hliðinni á Priusnum en það sem virðist hafa gerst er að framdekkið bílstjórameginn stóð aðeins út þegar Jeppinn rakst á það og fór í fulla beygju. Ekkert að finna að stýrisgangi, ekkert slag, hljóð eða neitt og bíllinn keyrir beint nema stýrislásinn er brotinn, sem sagt hægt að beygja honum í fulla beygju án þess að það sé svissað á.

Hef svo sem ekki miklar áhyggjur af því að bílnum sé stolið en er að velta því fyrir mér hvort það sé eitthvað fleira tengt þessum brotna stýrislási sem þarf að hafa áhyggjur af?


2013 Toyota Highlander Hybrid
2006 Ford Explorer Hákur Seldur
2008 Toyota Prius Sparibaukur
1995 Isuzu Rodeo Seldur

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1929
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Brotinn stýrislás

Postfrá Sævar Örn » 30.jún 2014, 18:33

þú þarft að hafa áhyggjur af því að brotið færist úr stað og læsi stýrinu óvænt, t.d. í hringtorgi, láttu allavega kíkja á þetta sem fyrst!
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1397
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Brotinn stýrislás

Postfrá Járni » 30.jún 2014, 22:09

Já, sammála Sævari, það er ekki gæfulegt að skoða þetta ekki nánar.
Land Rover Defender 130 38"


Höfundur þráðar
Rodeo
Innlegg: 74
Skráður: 01.aug 2012, 01:01
Fullt nafn: TUMl TRAUSTAS0N
Bíltegund: Ford Explorer
Staðsetning: Alaska

Re: Brotinn stýrislás

Postfrá Rodeo » 01.júl 2014, 05:46

Úff hafði ekki spáð í þetta að lásinn gæti gripið aftur þegar síst skildi.
Takk fyrir ráðin læt kíkja á þetta.
2013 Toyota Highlander Hybrid
2006 Ford Explorer Hákur Seldur
2008 Toyota Prius Sparibaukur
1995 Isuzu Rodeo Seldur


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur