39.5" Irok


Höfundur þráðar
Gummieh
Innlegg: 6
Skráður: 08.júl 2013, 23:27
Fullt nafn: Guðmundur Ellert Hauksson
Bíltegund: Isuzu D- MAX

39.5" Irok

Postfrá Gummieh » 08.jún 2014, 09:43

Sælt veri fólkið. Hvað segið þið mér með 39.5" Irok? Ég heyrði að þau þoli ekki þegar menn mýkja í þeim þá hitni þau og springi er þetta eitthvað sem fólk þekkir? Ég er með Patrol sem ég þarf að kaupa dekk undir en það er ekki orðið um margt að velja fyrir 15" felgur. Kv Gummi Hauks



User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: 39.5" Irok

Postfrá ellisnorra » 08.jún 2014, 09:53

Ég er í stríði við mín dekk núna, það fór að leka hjá mér þannig að ég setti bót innaná allstaðar sem var orðið slæmt. Þau springa við stóru kubbana sem koma upp á hliðarnar. Það var bara öðru megin og ekki allir kubbar, en sumstaðar var þetta mjög lélegt. Ég setti 8 bætur til að styrkja þetta. Fullt eftir að munstri en þessi dekk munu aldrei geta farið niðurfyrir 25pund aftur. Ég keyri á 30 pundum.
Ég skar líka hliðarkubbana af. Vonandi að þetta endist eitthvað svona. Þetta eru reyndar 41 tomma og hann stendur í dekkið þar sem þessi mynd er tekin.

20140608_094846.jpg
20140608_094846.jpg (161.07 KiB) Viewed 1927 times
http://www.jeppafelgur.is/


Fordinn
Innlegg: 377
Skráður: 03.feb 2010, 21:47
Fullt nafn: Mikkjal Agnar Þórsson

Re: 39.5" Irok

Postfrá Fordinn » 08.jún 2014, 14:36

gleymdu þessum dekkjum þetta er rusl.... rosalega góð i hálku.... enn það er ekki nog þegar þetta springur vinstri hægri. keypti nyjan svona gang og þetta var ónytt eftir árið... og nota bene aldrei hleypt ur!!!!

Ég er reyndar á þungum bíl.... patrol er engin létta vara heldur... enn án gríns finndu eitthvað annað.... skíta dekk og skita umboð sem selur þau.

User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: 39.5" Irok

Postfrá StefánDal » 08.jún 2014, 17:14

Algjör synd hvað þessi dekk eldast illa. Þegar þetta byrjar að fara svona þá eiga þau ekki langan tíma eftir.


ivar
Innlegg: 687
Skráður: 13.aug 2010, 09:03
Fullt nafn: Ívar Örn Lárusson

Re: 39.5" Irok

Postfrá ivar » 09.jún 2014, 12:44

ég var með svona undir patrol og var hæst ánægður með dekkin.
Notaði þau hinsvegar bara í eitt ár frá því þau voru ný, en gripu vel, voru skapleg í hávaða og hringlótt.
Ætla ekkert að tjá mig um endingu á munstri en á 41" irok, sem ég er líka ánægður með, þola þau frekar illa mikla úrhleypingu til lengdar og slitna frekar hratt undir f350.
Þetta er ekkert fullkomið dekk, en af því sem er í boði tæki ég sennilega 39,5" Irok á 15" felgu undir patrol.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 23 gestir