Síða 1 af 1
					
				Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 25.maí 2014, 14:23
				frá billi81
				Hvaða ryðvörn eru menn að nota i innri bretti og þar í kring
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 25.maí 2014, 16:10
				frá Potlus
				Fluid film er besta ryðvörnin ! Fæst hjá Verkfærasölunni
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 25.maí 2014, 21:00
				frá HummerH3
				Ég er forvitinn......hvernig er hún..piss þunn? Og hvernig er best að græja riðhrímaða jeppa grind..sem er undir bíl/í notkun......þráðeigandi afsakaðu (bros kall)
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 26.maí 2014, 00:11
				frá Startarinn
				Ég nota Kalt Asfalt eða Plastsement, plastsement fæst því miður ekki lengur, en það var grafin upp fata af hinu hjá versluninni Eyri á Sauðárkróki fyrir mig þegar ég kom með fötu af plastsementi að leita að einhverju sambærilegu, þetta er notað við að leggja þakpappa skilst mér, alveg snilldar stöff. Plastsementið var líka frábært í að fela slappar ryðbætingar, en það var örlítið þykkara og meira af trefjum í því en kalda asfaltinu
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 26.maí 2014, 06:42
				frá emmibe
				Virðist vera til í Bykó, ætla einmitt að prufa þetta stöff.
0236830 KALT ASFALT 10LTR(KLÆBER) 10.610 kr. fata
0236831 KALT ASFALT 2,5LTR(KLÆBER 4.120 kr. fata
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 26.maí 2014, 18:11
				frá Startarinn
				Þetta er það sem ég setti í hurðarnar á hilux, mér leist ágætlega á þetta, svo er hægt að þvo þetta af með bensíni ef maður þarf
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 26.maí 2014, 19:01
				frá Fordinn
				Kosturinn við Fluid Film er sá að þú getur sprautað þessu á    jafnvel án þess að fara útí einhverja hreinsun....   bara   sulla vel á og þetta  stoppar tæringuna...    gallinn er sá að það þarf að gera þetta ca 1 sinni á ári.....     mer hugnast eiginlega ekki að mjaka einhverju drullu dóti  yfir  ryð... sem grasserar svo undir.....  enn það eru sjalfsagt missjafnar skoðanir með þetta eins og annað.
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 26.maí 2014, 19:22
				frá Startarinn
				Ég hef líka þynnt þetta með bensíni og sprautað þessu, verður aftur jafnþykkt þegar þetta er búið að smjúga útum allt og bensínið gufar upp
			 
			
					
				Re: Hvaða ryðvörn í innri bretti
				Posted: 27.maí 2014, 08:14
				frá jongud
				Startarinn wrote:Ég hef líka þynnt þetta með bensíni og sprautað þessu, verður aftur jafnþykkt þegar þetta er búið að smjúga útum allt og bensínið gufar upp
REYKINGAR BANNAÐAR