Kæru jeppaspjallarar svo virðist sem bílnum okkar hafi verið stolið í nótt 20/5/14
Eruð þið til í að hafa augun opin og fylgjast með hvort þið sjáið flöskugrænann Subaru Impreza 1996 árgerð.
Frekari uppl. um bílinn
Bílnúmer: AL182
Filmur í farþegarúðum afturí
Tengdamömmubox á vinstri hlið topps
Er á frekar stórum dekkjum á álfelgum
Glæran byrjuð að flagna af húddinu
Í bílnum var systkinakerra frá framleiðandanum "2me", svört með rauðu.
Britax firstclass bílstóll og Britax Römer bílstóll (framvísandi með 5 pkt. belti)
Lögreglan fann Britax firstclass stólinn nú í morgunn en svo virðist vera að bílnum hafi verið ekið inn á Mosfellsheiði, þar sem brotist hefur verið inn í mannlausan bíl við afleggjarann að Kjósarskarðsveg og stólnum okkar hent út fyrir betri varning. Það er því mjög líklegt að bíllinn hafi ferðast inní Kjós eða lengra austur.
Það væri því einstaklega vel metið ef þig kæru vinir deilduð þessum pósti áfram svo sem flestir hefðu augun opin.
Eruð þið til í að hafa augun opin
Re: Eruð þið til í að hafa augun opin
búinn að deila á fésinu.
Re: Eruð þið til í að hafa augun opin
Takk fyrir það Kalli, þeir sem ætla sér í bíltúr mega endilega fylgjast með bílunum í kringum sig.
Hér eru myndir af kerrunum
Hér eru myndir af kerrunum
- Viðhengi
-
- WP_000204.jpg (103.41 KiB) Viewed 2809 times
-
- SL370543.JPG (221.72 KiB) Viewed 2809 times
Kveðja, Birgir
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur