Síða 1 af 1

Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 18:17
frá sukkaturbo
Sælir félagar nú erum við félagar Snilli og Tilli komnir að því að setja nýja reymdrifna helst alvöru loftdælu í Hulkinn sem endist. Svo er ég með í maganum einhverja græju til að geta notað gradda og rafsoðið. Man eftir því gamla daga að þetta var til og tengdist altenator í bílnum.Væri gaman að setja upp stuttan þráð hér um þetta svona til að eiga í framtíðinni hér inni. kveðja guðni

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 19:24
frá kjartanbj
Fáðu þér York dælu í húddið, málið dautt

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 19:26
frá sukkaturbo
Sæll en Endless air þessa bláu með smurkoppinn á belgnum er hún ekki en sterkari??

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 19:45
frá jeepson
Égh segi fini ef að menn eru að pæla í rafmgansdælu. En þær kosta auðvitað helling. Hef heyrt mjög góðar sögur af york og er að skoða þann möguleika þegar að ég verð búinn að troða 4.2 í húddið á pattanum mínum. Annars er fini dælan að reynast mér vel.

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 20:56
frá sukkaturbo
Sælir félagar fæ sent í næstu viku York V- dælu tveggja stimpla til að bera við og purfa hvort hún kemst fyrir í cruser og hjá sama félaganum fæ ég til skoðunar 24 volta altinator sem var í Volvo vörubíl og var notaður til að rafsjóða rör og fleira svo það verður hægt að skoða og spekúlera næstu vikurnar kveðja guðni

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 21:00
frá xenon
Hvernig er með þessar york dælur þarf 4.2 í patrol til að snúa þeim :-)

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 21:12
frá ellisnorra
En loftpressu úr vörubíl? Ég sá undir húddið (húsið) á scaniu um daginn og þar var svakalega stór loftpressa, man ekki hvort hún var 1600 eða 1800 kúbikk. Þetta er náttúrulega til í öllum stærðum. Eitthvað sem er vert að skoða.

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 21:40
frá Izan
Sælir

Sammála Ella að nota vörubílapressu, þú ert með 24V fyrir segulkúplinguna og það eru pressur ætlaðar til að dæla lofti en ekki kælimiðli.

Kv Jón Garðar

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 22:05
frá sukkaturbo
Sælir já flottur punktur þarna kanski líka á sumum traktorum hver veit?

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 22:18
frá ellisnorra
Já ég á líka loftpressu af ursus, hún er nokkuð öflug, nokkuð þung líka og með "gírstöng" til að kveikja og slökkva á henni. Reimdrifin, boltuð utaná blokkina á ursus og fær smurningu af "sullinu" af mótorolíunni á ursusnum. Ég lokaði því og bjó þannig til smurkjallara á henni og notaði á torfærugrind hjá mér einusinni. Kannski sniðugt að mixa á cummins og hafa tvær alvöru loftdælur :)

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 05.apr 2014, 23:05
frá Lindemann
það eru ekki margir vörubílar með reimdrifnar loftdælur í dag held ég en þeir voru margir í gamla daga

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 06.apr 2014, 00:35
frá Þráinn
Ég setti York í bílinn hjá mér og er hún afkasta mesta dælan sem ég hef verið í kringum og hún getur snúið á næstum alla vegu

http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=22341

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 06.apr 2014, 21:54
frá Lindemann
og ætlaru að kaupa þér golf?

Re: Alvöru Loftdæla og rafsuðugræjur í bíla????

Posted: 07.apr 2014, 12:44
frá Þráinn
Lindemann wrote:og ætlaru að kaupa þér golf?


hvernig gerðist þetta eiginlega

er ekki hægt að ráða tæknimann til að senda skilaboð hingað inn fyrir mann? ;)