Síða 1 af 1
stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 21:21
frá Árni Braga
Hvað haldið þið að það taki langan tíma
að stilla inn drif
ég talaði við tvö verkstæði í dag og varð eins og klessa.
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 21:27
frá hobo
Ég myndi skjóta á a.m.k hálfan dag. Miðað við að skipta um legur líka, og með öll verkfæri til staðar.
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 21:36
frá Startarinn
Mig minnir að það hafi tekið mig 5-6 tíma að minnsta kosti, sennilega mun meira, ég hef reyndar bara gert þetta einu sinni. Þetta eru orðin nokkur ár síðan, ég tók dótið með mér út á sjó, eftir þetta skil ég alveg afhverju menn borga öðrum mönnum fyrir að gera þetta fyrir sig
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 21:36
frá Polarbear
ef maður ætlar að vanda til verka og gera þetta eins og maður þannig að þetta endist er þetta amk. 5-7 tíma vinna ef maður hefur öll verkfæri við hendina. Ég stilli mín drif inn sjálfur í dag því mér er ekki sama hvernig þetta er gert.
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 21:49
frá jongud
Ef þetta er samlokudrifið að framan hjá þér þá held ég að það sé eitt það allra leiðinlegasti fjandi til að stilla inn.
Fáðu fagmann í þetta nema þú sért með 5-6 ísetningar á ferilskránni.
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 22:15
frá Freyr
Myndi gera ráð fyrir ekki minna en hálfum degi.
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 22:16
frá Fordinn
EINAR frændi minn............ .........
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 22:48
frá hannibal lekter
Fordinn wrote:EINAR frændi minn............ .........
LIKE á það!
Re: stilla inn drif
Posted: 17.mar 2014, 23:17
frá svarti sambo
Það er voðalega erfitt að gefa upp tímasetningar á svona hlutum og ég myndi halda að þetta væri svona 5-7 tímar.
Ef þú hefur ekki þekkinguna á þessu að þá myndi ég gleyma þessu og fá bara fast verð í þetta,þar sem að þetta getur verið breytilegt eftir því hvaða maður vinnur verkið. Menn vinna misjafnlega hratt og vel. Fáðu frekar meðmæli frá mönnum hér, hvert þú skulir fara með þetta.
Get ekki bent þér á neinn þar sem að ég geri þetta sjálfur.
Re: stilla inn drif
Posted: 18.mar 2014, 05:56
frá Árni Braga
Ég talaði við Aron í Breyti hann gaf mér upp 2,5 tímar fast verð 20.000-
Artic Trucks gefa upp 5 til 6 tíma 68.000.
þetta er svolítill munur.
það hefði kanski átt að koma framm að ég kem með þetta allt í lausu ekki undir bílnum
ég held að Aron geti þetta er það ekki.
Re: stilla inn drif
Posted: 18.mar 2014, 07:37
frá ivar
Mín reynsla af Aron er góð. Hef samt ekki látið hann stilla inn drif fyrir mig en hefði ekki hikað við það.
Re: stilla inn drif
Posted: 18.mar 2014, 08:23
frá jongud
Þú lést Aron vita af því að þetta væri samlokudrif, ekki satt?
Re: stilla inn drif
Posted: 18.mar 2014, 09:07
frá svarti sambo
Ég held að Aron hljóti að vera að tala bara um stillinguna strípaða en ekki að skifta um legur líka.
Re: stilla inn drif
Posted: 18.mar 2014, 09:55
frá Árni Braga
Hann er nú ekki kjáni hann Aron, hann hlítur að vita að lc90 sé með samlokudrif
en annars hann er komin með þetta í hendurnar.
Re: stilla inn drif
Posted: 18.mar 2014, 11:01
frá jeepcj7
Endilega sýndu okkur mynd í hádeginu hvernig drifið tekur hann ætti að vera búinn þá ;O)
Þetta er allavega flott verð hjá honum.