Síða 1 af 1

hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 20:43
frá ingi árna
Veit einhver hvaða hlutföll komu orginal í stutta 70 krúsernum árgerð 1986?

Re: hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 20:44
frá ingi árna
Og hver er munurinn á þessum afturhásingum og þeim sem komu í Hiluxnum.

Re: hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 21:01
frá bragig
Í díselbílnum 2.4 stutta voru 1:4.88 hlutföll en í bensínbílnum 1:4.56 ef ég man rétt. Afturhásingin er talsvert frábrugðin hilux hásingunni, drifkúlan er hægra megin (farþegamegin) en sama stærð af drifi og í hilux þ.e. 8".

Re: hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 21:04
frá ingi árna
takk fyrir

Re: hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 21:08
frá ingi árna
Passar þá drifið úr 70 krúsernum í hilux hásinguna, allur köggulinn eða bara hlutfallið?

Re: hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 21:26
frá grimur
Allur köggullinn á að passa á milli.

Ég hef aðeins orðið var við spes keisingu í þessum bílum, minnir einmitt að það hafi verið 1:4.88 hlutfallið sem er með "þunnum" kamb frá Toyota, en flangsinn fyrir kambinn hliðraðan í staðinn. Í þannig drif passar ekkert nema þetta eina hlutfall, sem bara fæst frá Toyota.
Það er sumsé algert viðrini sem borgar sig að henda úr fyrir eitthvað annað heppilegra nema einfaldlega að svona drif brotni og maður vilji fá annað eins í staðinn.

Framhásingin í Cruiser er svo með High Pinion (stundum kallað reverse), sem á hvergi heima nema í þannig hásingu, sama/svipað og í framhásingu á 80 cruiser líka. Sér hlutföll og leiðindi, en læsingar eins og ARB og NoSpin passa á milli. Í 80 cruiser er held ég alltaf eða nær alltaf rafmagnslás.
kv
G

Re: hlutföll í 1986 LC 70

Posted: 16.mar 2014, 22:49
frá Startarinn
Köggullinn passar, það er 70 cruiser köggull í afturdrifinu á hiluxinum mínum, kemur úr 2,4 bensín, 1:4,56 hlutfall