Síða 1 af 1

ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 06.nóv 2010, 13:55
frá geirlaugur
Sælir.

Það heyrist eitthvað leiðinda skrölt að aftan í Pajeronum, sérstaklega ef ég rykki honum til hægri og vinstri til skiptis.
Hann er 33" breyttur og ballance stangartengi og gúmmí eru ný að aftan, hvað gæti þetta verið ?

ABS ljós logar og það er bilun á Valve Relay(51) og output frá G skynjara(26,27) sem eru villurnar á ABS tölvunni, einhverjar hugmyndir um hvað það getur verið ?

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 06.nóv 2010, 20:11
frá juddi
mundi skoða spyrnu gúmmí og googla abs codana

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 08.nóv 2010, 11:05
frá geirlaugur
Er mikið mál að skipta um gúmmí fyrir stífurnar að aftan í Pajeronum ?

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 08.nóv 2010, 12:48
frá HaffiTopp
..

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 10.nóv 2010, 12:09
frá geirlaugur
Sæll, þetta er 1999 árgerð.

Efri Stífugúmmíin í stífunum að aftan eru orðin ansi slöpp og eru líklegast að valda þessu skrölti.
Gúmmíin virðast bara vera boltuð í þar getur það passað ?
Er þá nóg að losa bara boltann, ýta stífunum út og smella nýjum gúmmíum í ?

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 10.nóv 2010, 14:06
frá jeepcj7
Gúmmíin sem eru upp við grind er mjög einfalt að skipta um bara akkúrat að losa rónna ýta stífunni aftur smeelu nýjum í og herða aftur. ;o)
Gúmmíin við hásingu þarf aftur á móti að pressa í og úr.

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 10.nóv 2010, 14:30
frá geirlaugur
Snilld, þá hendist ég bara í þetta sjálfur, það eru gúmmíinn við boddíið sem eru farin :).

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 10.nóv 2010, 14:58
frá HaffiTopp
..

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 10.nóv 2010, 15:48
frá geirlaugur
Èg þarf ekkert að tjakka bìlinn upp til þess að geta skipt um stìfugùmmìin er það ?

Re: ABS bilun Pajero og skrölt að aftan.

Posted: 13.nóv 2010, 09:14
frá geirlaugur
Sælir.

Haldið þið ekki að það geti verið að ég þurfi að eyða villum út af ABS kerfinu til að ljósið slokkni í mælaborðinu ?

Er kominn með eitthvað vit í þetta en ljósið logar enn, búinn að prófa að aftengja rafgeyminn, eitthvað fleira sem maður getur gert ?

Villurnar voru á Valve Relay, G sensor og 26 og 27 sem ég man ekki hvað er.