Síða 1 af 1

skrúfa upp í hilux ?

Posted: 04.mar 2014, 21:53
frá Valdi B
sælir, var að setja boost controller og mæli í 2000 árgerð af hilux með 2.4 dísel, og ætlaði að skrúfa aðeins uppí olíuverkinu, veit eitthver hvort þetta er svona rafmagnsolíuverk hálfgert eins og kom í 90 krúser 97 eða er hægt að skrúfa uppí þessu með einni skrúfu eins og er í eldra dótinu ?

finn ekki skrúfuna allavega hehe, ef það er hægt aðskrúfa upp í því þá mætti endilega henda inn mynd hérna af þessari töfraskrúfu á olíuverkinu ef eitthver á hana til eða veit um hana á netinu.

takk kærlega !

kv.valdi

Re: skrúfa upp í hilux ?

Posted: 05.mar 2014, 03:11
frá StefánDal
Það er þessi "Full Load Screw" sem þú ert að leita að. Sennilega er á henni innsigli. Skrúfaðu lítið í einu og prufaðu þig áfram. Svona æfingar eru farsælastar með afgashitamæli.
Image

Hér er svo góð lesning um hestaflaleit í 2L-T.
http://forum.ih8mud.com/diesel-tech-24- ... -2lte.html

Re: skrúfa upp í hilux ?

Posted: 05.mar 2014, 03:30
frá Hr.Cummins
just remember... with more fuel comes more boost....

Re: skrúfa upp í hilux ?

Posted: 05.mar 2014, 19:23
frá Valdi B
þakka þér fyrir stefán! :) ég (tölvuhefti) maðurinn er búinn að vera að reyna að finna álíka mynd á netinu en gat ekki einu sinni fundið út hvað olíuverk myndi þýða á ensku hehe :D

þá get ég vonandi bætt aðeins við hann á morgun, en það fer í hann afgashitamælir, það er bara ekki búið að versla hann ennþá.

og viktor takk fyrir ábendinguna, ég fylgist vel með boostmælinum og sé hvernig þetta þróast, það bara varð að gera eitthvað fyrir greyið, hann var álika kraftmikill og 2.4 túrbínulaus, slæmt fyrir bíl með 2lt, túrbínu úr 2.5 commonrail bíl og fmic..