Síða 1 af 1
Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 20.feb 2014, 21:22
frá Jóhann Örvar
Sælir sjallverjar. Hver selur fóðringar í fram - aftur stífur úr land cruiser 70 aðrir en umboð á okurverði passar úr
einhverjum öðrum bíl.
Kv. Jóhann Örvar
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 21.feb 2014, 00:39
frá spámaður
stál og stansar td..
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 21.feb 2014, 01:10
frá olafur f johannsson
hefurðu skoðað verð hjá toyota ? ég keypt einhvern tíman svona þar og fannst þær ekki dýrar
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 21.feb 2014, 01:43
frá Gunnar00
um 7000 kr stykkið sem eru í hásinguni (4 í heildina) og einhvað um 3000 þær sem eru við grindina (2stk) í umboðinu. smá fjárhæð þegar allt er lagt saman.
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 21.feb 2014, 19:38
frá Startarinn
Þetta er bara svipað verð og polyurethane fóðringarnar hjá stál og stönsum, ég borgaði að mig minnir 12 þús fyrir parið á hásingar endann á stífunni 2010 eða 2011.
Þetta þykir nú ekkert himinhátt verð í dag........
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 21.feb 2014, 22:46
frá Jóhann Örvar
þakka svörin en eru eins fóðringar í land cruiser 80 ekkert mál að finna þær á góðu verði hjá ebay frænda
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 21.feb 2014, 23:43
frá Andri M.
mer finnst þetta nú bara mjög gott verð miðað við að þetta séu orginal íhlutir og beint frá umboði
þannig að eg myndi bara skella mer á þetta ef eg væri þú, sjálfur er eg skítblankur og mjög nískur þegar kemur á verð, en þetta er verð sem eg myndi stökkva á
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 22.feb 2014, 17:07
frá Gunnar00
mig langar nú eiginlega að vita hvort það séu eins fóðringar í 70 og 80 krúser stífum. er einhver sem er fróður um þau mál?
Re: Stífufóðringar land cruiser 70
Posted: 22.feb 2014, 17:17
frá Kiddi
Ekki eins við grind í það minnsta en þekki ekki með niðri við hásingu
Svo eru polyurethane fóðringar leiðinlegri en gúmmí spurning með að taka það með í reikninginn...