Síða 1 af 1
Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 20.feb 2014, 18:19
frá Johnboblem
Góða kvöldið!
Það lak um það bil 5l díselolía á bílaplanið hérna fyrir utan hjá mér. Þetta er frekar subbulegt.
Ég þarf að þrífa þetta upp. Ég er búinn að treyna olíhreynsi en það virkaði ekki nægilega vel.
Getið þið mælt með eitthverju?
Nota heitt eða kalt vatn?
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 20.feb 2014, 18:31
frá hobo
Ég nota þetta, virkar vel á svona gólfskít og olíubrákir.
Svo er það líka umhverfisvænt :)
Skrúbba vel og nota heitt vatn.http://jako.is/index.php/jako-efnavoeru ... 5-jako5000
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 20.feb 2014, 19:14
frá Steinmar
Sæll
Prófaðu að dekka olíublettinn með kattasandi (þarf ekki að vera með ilmefni ;)) og leyfðu honum að liggja á í nokkra daga og sópaðu sandinum fram og til baka kvölds og morgna. Eftir nokkra daga (3-5) sóparðu öllu saman og þværð vel og vandlega með Undra
http://www.undri.is/hreinsilogur/findex.htmÞetta hefur reynst mér vel, alveg sérstaklega á hellulögðu yfirborði. Ég hef meira að segja náð að hreinsa upp gamla olíubletti með þessari aðferð.
Kv. Steinmar
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 20.feb 2014, 21:41
frá Johnboblem
Takk kærlega fyrir þessi svör.
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 20.feb 2014, 22:22
frá fillinnpedo
Helltu bara smá bensíni á planið og kveiktu í öllu helvítis draslinu.
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 21.feb 2014, 01:32
frá tommi3520
Lol
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 21.feb 2014, 12:03
frá lilli
Sammála með Undrann, færð ekki betra hreinsiefni í olíu!
Re: Þrífa díselolíu - Vantar smá hjálp
Posted: 23.feb 2014, 13:34
frá Subbi
eitt besta efni sem hægt er að fá í að hreinsa Olíu bæði nýja og gamla olíubletti úr Hellusteinum og steypu og til að þrífa gólf ofl er efni sem Heitir Oil Degreaser og Kemi selur í ýsmum stærðum af Umbúðum
Ég notaði þetta til að halda Bónstöðini hjá mér góðri og þetta er snlldarefni og er vatnsblandanlegt til að stilla styrkleikann og umhverfisvænt og lyktlaust
frábært á felgur líka í 50/50 blöndu bæði Ál og Króm og Stál felgur má nota til að hreinsa sæti föt ofl bara blanda eftir því hvað á að gera
3.78 lítrar duga venjulegum bílabraskara árið með blöndun og ef allt er í olíu og ógeði er þetta besta efmið sem völ er á
http://www.kemi.is/cleaner-degreaser-3- ... wn4wvl_t8E