Síða 1 af 1
Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 00:55
frá Hfsd037
Sælir, er í smá pælingum varðandi vatnskassa sem er hugmynd að koma yfir í ZJ bíl.
Vatnskassarnir eru í raun alveg eins fyrir utan nokkur smáatriði en málið er að ég þarf breytistykki fyrir lagnirnar fyrir sjálfskiptinguna, það virðist vera sverari skrúfgangur í vatnskassanum á WJ bílnum, vitið þið um eitthvað millistykki svo það sé hægt að láta þetta ganga saman?
Svo annað, áfyllingastúturinn er svolítið hærri á vatnskassanum úr WJ, eins vatnskassinn, en það munar ekki miklu..
Ég væri alveg til í að skipta nýrri vatnskassanum út fyrir orginal, svona ef þið vitið um einhvern sem liggur á þannig ..


Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 09:16
frá Startarinn
Ef þú ert á höfuðborgarsvæðinu ættu landvélar eða Barki að geta hjálpað þér með þetta, spurning um að fara hreinlega með kassana til þeirra, eða lagnirnar að skiptingu og kassann sem þú ætlar að nota.
Varðandi stútinn, ef þú þarft að lækka hann er það ekki stórmál ef kassarnir eru úr kopar, það er hægt að lóða það með þokkalegum lóðbolta. Ef þeir eru úr plasti hef ég ekki margar lausnir fyrir þig
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 10:18
frá Hfsd037
Takk fyrir svarið, ég var einmitt hjá Barka rétt í þessu, þeir geta smíðað breytistykki fyrir mig
en ég tók eftir því að á nýrri bílnum eru notaðar klemmur en ekki á eldri bílnum, þar eru lagnirnar pressaðar saman.
Ætli það sé þa í lagi að nota hosuklemmur, ættu þær ekki að þola þrýstingin?
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 13:43
frá Startarinn
Farðu bara með lagnirnar í barka og láttu þá pressa þetta fyrir þig þegar þeir smíða millistykkin, langminnsta vesenið og ódýr hugarró
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 16:54
frá Hfsd037
Startarinn wrote:Farðu bara með lagnirnar í barka og láttu þá pressa þetta fyrir þig þegar þeir smíða millistykkin, langminnsta vesenið og ódýr hugarró
Já það hefði verið lang sniðugast, en vatnskassinn passar ekki, stúturinn stendur of hátt upp úr.
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 17:35
frá villi58
Gat í húddið og málið leyst.
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 11.feb 2014, 18:33
frá Stebbi
Ég myndi ekki láta mér detta það til hugar að nota svona notaðan kassa úr WJ. Þegar þetta er orðið tæplega 10 ára gamallt þá verða botnarnir alveg eins og þeir séu smíðaðir úr CornFlakes. Má ekki horfa stíft á þá án þess að það braki í þeim.
Ég keypti nýjan svona kassa í WJ á 28þús á Ljónstöðum árið 2009 þegar að dollarinn var í hæstu hæðum. Mæli með því að þú kíkir betur á það að fá nýjan kassa í gamla bílinn eða þá hreinlega að kaupa nýjan WJ kassa ef að hinn er of dýr.
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 12.feb 2014, 07:14
frá Hfsd037
Stebbi wrote:Ég myndi ekki láta mér detta það til hugar að nota svona notaðan kassa úr WJ. Þegar þetta er orðið tæplega 10 ára gamallt þá verða botnarnir alveg eins og þeir séu smíðaðir úr CornFlakes. Má ekki horfa stíft á þá án þess að það braki í þeim.
Ég keypti nýjan svona kassa í WJ á 28þús á Ljónstöðum árið 2009 þegar að dollarinn var í hæstu hæðum. Mæli með því að þú kíkir betur á það að fá nýjan kassa í gamla bílinn eða þá hreinlega að kaupa nýjan WJ kassa ef að hinn er of dýr.
Reyndar er kassinn úr WJ bílnum nokkuð góður, en ég sé hvað þú átt við með Kelloggs dæmið, eldri kassinn er stráheill að ofan en dúnamjúkur að neðan.
Veistu til þess að menn hafi verið að láta kassa úr WJ yfir í ZJ?
Hjalli í Kóp vildi meina að hann hefði gert þetta eitthverntímann
En það er eiginlega ekki budget fyrir nýjum kassa, en ég tími varla að fara að skera festingarnar af nýrri kassanum fyrr en að ég veit að ég finn engan annan notaðann kassa.
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 12.feb 2014, 07:30
frá Hfsd037
villi58 wrote:Gat í húddið og málið leyst.
Já, það væri sko ekta amerískt! :)
Re: Smá fittings vesen með vatnskassa úr WJ yfir í ZJ
Posted: 12.feb 2014, 13:36
frá Stebbi
Hfsd037 wrote:villi58 wrote:Gat í húddið og málið leyst.
Já, það væri sko ekta amerískt! :)
Og stórt krómað lok með þrýstimæli. ;)