Síða 1 af 1
isusu trooper 38"?
Posted: 06.feb 2014, 18:51
frá hannibal lekter
Sælir drengir hvað getið þið frætt mig um trooper hvernig eru þessir bílar kostir og gallar?
Re: isusu trooper 38"?
Posted: 07.feb 2014, 18:31
frá hannibal lekter
?
Re: isusu trooper 38"?
Posted: 07.feb 2014, 18:36
frá fillinnpedo
Kostir, ágætis kraftur og vinnur vel, mjög sanngjörn eyðslan á þeim finnst mér, hægt að fá þá á góðu verði. Gallar hmmm, spíssar geta verið með vesen, glóðarkertin gróa rosalega fast við heddið og brotna nær alltaf þegar skipt erum þau og oft springur heddið út frá glóðarkertunum, svo er loomið fyrir fuel rail sensorinn og sensorinn, fer oftast swinghjólið þegar að kúplingin fer og bara hjólið er að kosta 110 þús eða eitthvað álíka. En samt ágætis bílar ef þú kannt að skrúfa sundur og saman
Re: isusu trooper 38"?
Posted: 07.feb 2014, 19:58
frá oskargj
er með einn 35" og er búin að keyra 14000 kilómetra frá því í ágúst og er bara mjögsáttur er að eiða milli 9-10 á hundraði miðað við 70-90 kílómetrahraða.vinnur nokkuð þétt og hef heyrt að menn verða að vera duglegir að skipta um olíu (ca 7000 km fresti)þá rúlla þeir nokkuð vel.
Re: isusu trooper 38"?
Posted: 07.feb 2014, 22:44
frá Sira
Er með einn óbreyttan búinn að eiga hann í ca 3 á og keyra um 40.000 km .
Kostir eru sparneytinn, gott pláss, ágætis kraftur
gallar er mótorinn , ekki hægt að treysta á hann, spíssar, railsensor, glóðakerti, ofl
Eg skipti alltaf á 5000 km fresti og skipti um báðar olíusíunar og nota 5w30 olíu
Re: isusu trooper 38"?
Posted: 11.feb 2014, 21:16
frá hannibal lekter
Þakka góð svör
KV hannibal