Síða 1 af 1
					
				Númeraplötur
				Posted: 06.feb 2014, 18:03
				frá eythor6
				Hvernig er það getur skráður eigandi einn náð í númeraplötur ef þær liggja inni eða getur hver sem er náð í þær? Hefur eitthver hugmynd
			 
			
					
				Re: Númeraplötur
				Posted: 06.feb 2014, 18:07
				frá Ásgeir Þór
				Hef alltaf sent einhvern annan að taka út númer á mínum bílum sem skráðir eru á mig vegna þess að ég kemst ekki og það hefur alltaf gengið án vandræða.
			 
			
					
				Re: Númeraplötur
				Posted: 06.feb 2014, 19:43
				frá Halldorfs
				eythor6 wrote:Hvernig er það getur skráður eigandi einn náð í númeraplötur ef þær liggja inni eða getur hver sem er náð í þær? Hefur eitthver hugmynd
Verður yfirleitt að vera bara með skriflegt umboð.
 
			
					
				Re: Númeraplötur
				Posted: 06.feb 2014, 20:10
				frá Offari
				Ég hef alltaf þurft umboð til að ná út númerum af bílum sem aðrir eru skráðir fyrir.    Og spaugilega er að jafnvel bíla sem ég set inn sölutilkynningu fyrir og skrái á mitt nafn fást ekki númer tekin út fyrr en daginn eftir því tövukerfið þarf sinn tíma til að samþykkja skráninguna.
Hef reyndar einu sinni sent konuna með umboð til að taka út númer en þá var hlegið því konan reyndist vera skráður eigandi og umboðið því óþarft.
			 
			
					
				Re: Númeraplötur
				Posted: 07.feb 2014, 00:25
				frá Valdi B
				hef einu sinni lent í því að þurfa að redda umboði svo annar gæti náð í númer fyrir mig... annars ekkert mál í hin skiptin :)
			 
			
					
				Re: Númeraplötur
				Posted: 07.feb 2014, 00:33
				frá eythor6
				Takk strákar fyrir svörin, eg læt reyna á þetta :-)