Síða 1 af 1

landcruiser 90 ráðleggingar

Posted: 02.feb 2014, 18:43
frá Palli
sælir.
var að bjóðast 1998 landcruiser 90, dísel, sjálfskiftur 35 tommu breyttur ekinn réttrúmlega 300.þús með nýju heddi í 285.þ og tímareim í rúmlega 200.þ
Hef aldrey átt svona bíl eða bara beyttan bíl yfir höfuð.
Langar að spyrja ykkur sem hafið reynslu af þessum bílum hvernig er að reka þetta þ.e.a.s eldsneytis eyðsla, viðhald og bara almennur rekstur, og er e-ð sem ber að varast í þessum bílum?

þakka svörin

Re: landcruiser 90 ráðleggingar

Posted: 02.feb 2014, 19:23
frá Árni Braga
bara keyra og vera hamingjusamur,[code][/code]

Re: landcruiser 90 ráðleggingar

Posted: 03.feb 2014, 01:42
frá grimur
Hlusta eftir gírhljóði í skiptingunni kannski, þó að þetta séu ansi seigar skiptingar geta þær daprast.
Svo þetta venjulega: Skoða sílsa aftur við hjól, grindina á sama svæði að innan og utan og upp fyrir hásingu, stýrisendar, hosur, hjöruliðskrossar og annað. Allt slappast þetta með tímanum en ef það hefur verið skipt um þetta er það gjarna merki um að bílnum hafi verið vel við haldið að öðu leyti. Mér finnst líka alltaf traustvekjandi að sjá slettur eftir smurningu í drifsköftin undir gólfinu...

kv
Grímur

Re: landcruiser 90 ráðleggingar

Posted: 03.feb 2014, 07:40
frá Polarbear
skoða vel ástand á gúmmíum í klafa-systeminu að framan. bíllinn er leiðinlegur í stýri og misslítur dekkjum ef ekki er hugsað vel um þetta klafadót.

annars er þessi bíll fínn, ágætis kraftur og fínt að ferðast í þessu.

Re: landcruiser 90 ráðleggingar

Posted: 03.feb 2014, 12:30
frá ursus
Er ekki orðið slitt í draglið á skafti?