Frikki Mampi

User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Frikki Mampi

Postfrá Brjótur » 30.okt 2010, 13:54

Hvað á svona mismunun að þýða, setur bara á f4x4 myndirnar eftir yfirhalninguna Usssss maður:)
En helv.... flottur hjá þér fyrir utan þetta blessaða Land Rover slagorð þarna aftan á hliðinni hjá þér, ég veit þetta á við um okkur Patrol eigendur , en því miður held ég að flestir tengi þetta Traktorunum ,,,, Æ ég meina LandRover ;)

Kveðja Helgi



User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Frikki Mampi

Postfrá Kiddi » 30.okt 2010, 19:25

Góð setning... nema það gleymist yfirleitt að klára hana!

One live. Live it. Don't drive a Land Rover!

User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Frikki Mampi

Postfrá Brjótur » 30.okt 2010, 20:37

STÓÓRT LIKE á þetta Kiddi :)

User avatar

frikki
Innlegg: 432
Skráður: 01.feb 2010, 14:59
Fullt nafn: friðrik hreinsson

Re: Frikki Mampi

Postfrá frikki » 30.okt 2010, 21:03

góður helgi...... :))
ja fannst þetta flott slagorð ,,,,,,,,,, en á þetta ekki skilið að vera á alvöru bíl heheheh
þ.e.a.s PATROL :))
Patrol 4.2 44"


arnia
Innlegg: 9
Skráður: 01.aug 2010, 11:05
Fullt nafn: Árni Árnason

Re: Frikki Mampi

Postfrá arnia » 31.okt 2010, 09:19

Patrol er eflaust ágætisbíll, en menn vita ekki hvað það er að lifa þessu eina lífi sem við eigum, finna vindinn í hárinu og öll veðrabrigði náttúrunnar á eigin skinni ( með lokaða gluggana ) fyrr en þeir komast í Land Rover. Þá fyrst byrjar lífið.

Kveðjur, Land Rover eigandi

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Frikki Mampi

Postfrá Stebbi » 31.okt 2010, 18:17

arnia wrote:........ finna vindinn í hárinu og öll veðrabrigði náttúrunnar á eigin skinni ( með lokaða gluggana ) fyrr en þeir komast í Land Rover. Þá fyrst byrjar lífið.

Kveðjur, Land Rover eigandi


Væri ekki nær að segja þá fyrst byrjar baráttan fyrir lífinu. Ef að mönnum er svona annt um það að fá ferska jökulgoluna í andlitið í norðanátt í febrúar þá er hagkvæmast að fá sér bara hest.

Kveðja, Jeep sýktur einstaklingur.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Frikki Mampi

Postfrá Brjótur » 31.okt 2010, 19:08

Heyrðu Land Rover eigandi við fáum okkur bara vélsleða eða fjórhjól ef við viljum finna vindinn leika um okkur ;) hehe

Og jú Frikki það er nú það sem ég meina eeenn samt tengja menn þetta alltaf við...... þú veist ;)

User avatar

frikki
Innlegg: 432
Skráður: 01.feb 2010, 14:59
Fullt nafn: friðrik hreinsson

Re: Frikki Mampi

Postfrá frikki » 31.okt 2010, 20:58

veit heheheheh :))
Patrol 4.2 44"


HHafdal
Innlegg: 128
Skráður: 18.mar 2010, 10:52
Fullt nafn: Halldór Hafdal Halldórsson
Staðsetning: Vatnsleysuströnd

Re: Frikki Mampi

Postfrá HHafdal » 01.nóv 2010, 10:26

eins og maðurinn sagði "ég á mér draum" (Landrover)

User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Frikki Mampi

Postfrá Brjótur » 01.nóv 2010, 20:22

H Hafdal þetta líkist nú meira martröð en draumi :)


Hjallinn
Innlegg: 8
Skráður: 31.okt 2010, 11:15
Fullt nafn: Guðbjartur Guðmundsson
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið

Re: Frikki Mampi

Postfrá Hjallinn » 01.nóv 2010, 21:59

Þeir sem hafa ekki átt Land Rover vita ekki hvað þeir fara á mis við mikið og finna þeim allt til foráttu.
Við sem höfum átt og eigum Land Rover vitum annað.

Kv Bjartur
Image


MG MGB 1969

....................................................................
Life begins at pavement's end.

User avatar

Höfundur þráðar
Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Frikki Mampi

Postfrá Brjótur » 01.nóv 2010, 22:57

Je right!


arnia
Innlegg: 9
Skráður: 01.aug 2010, 11:05
Fullt nafn: Árni Árnason

Re: Frikki Mampi

Postfrá arnia » 02.nóv 2010, 12:16

Svo taka þeir alla spónhúsanýju japönsku fiskbílana og amerísku dinosárana beina leið inn í bílskur og eyða svona milljónkalli í að breyta þeim í Landrover. He he


Dodge
Innlegg: 288
Skráður: 05.okt 2010, 15:05
Fullt nafn: Stefán Örn Steinþórsson
Bíltegund: Jeep Wrangler
Staðsetning: Akureyri

Re: Frikki Mampi

Postfrá Dodge » 04.nóv 2010, 14:33

Meinaru þá að hnoða utan á þá álkassa og henda hurða og rúðupakkningunum eða hvað?

User avatar

Einar
Innlegg: 319
Skráður: 01.feb 2010, 00:32
Fullt nafn: Einar Steinsson
Staðsetning: Austurríki
Hafa samband:

Re: Frikki Mampi

Postfrá Einar » 04.nóv 2010, 14:50

Verkfræðingur frá Land Rover fór í heimsókn til Toyota í Japan og sá meðal annars verkfræðingana þar vera að hanna nýjustu Land Cruiser yfirbygginguna. Hann tekur eftir að á á einu borðinu eru þeir með kött í litlu búri og hann spyr til hvers hann sé. Japanskur verkfræðingur segir honum að þegar þeir hafa lokið við Land Cruiser boddíið muni þeir læsa köttinn inni í því og fara heim. Ef kötturinn er dauður þegar þeir koma aftur um morguninn þá sé boddíið nógu þétt.
Land Rover verkfræðinginum finnst þetta bráðsnjöll hugmynd og þegar hann fær aftur að vinna í Solihull tekur hann kött með sér í vinnuna og lokar hann inni í Defender og fer heim um nóttina. Þegar hann kemur aftur um morguninn er kötturinn farinn.


arnia
Innlegg: 9
Skráður: 01.aug 2010, 11:05
Fullt nafn: Árni Árnason

Re: Frikki Mampi

Postfrá arnia » 04.nóv 2010, 21:09

He he. Það þarf nú væntanlega að henda einhverju fleiru en hurðaþéttum og rúðugúmmíum, nema þú sért á bíl sem er með 1/2 tonn af hurðaþéttingum og rúðugúmmíum, þá væri það fín byrjun, svo geta menn farið að henda flatjárnabúntum , klafadrasli ofl. þvílíku drasli.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 47 gestir