Síða 1 af 1
Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 15:29
frá karig
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 15:34
frá atte
Gott verð á þessum
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 16:58
frá birgirn
Ég var að henda svona í minn og þetta lítur vel út bara. Björt led lýsing og virkar nokkuð solid miðað við kínadót.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 17:18
frá jongud
Og hræódýr boost mælir hjá sama seljanda...
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 17:25
frá jeepcj7
Flott verð að sjá hvað eru þessir að kosta hingað komnir?
Mig er farið að bráðvanta púst og boost mæla.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 18:42
frá ivar
NEI !!!
Ég er með bæði boost og EGT mæli frá þessum aðilum og ræð ykkur frá þessum mælum.
EGT mælirinn lofaði góðu. Fyrst hætti lýsingin á nálinni að virka og núna sýnir mælirinn ekkert að viti svo hann er bara hættur að virka. Stundum eru 500°C þegar bíllinn er ný kominn í gang kaldræstur og 200°C í góðri gjöf upp kambana.
Varðandi boost mælinn þá er styttri reynsla á honum. Ég nota hann sem dekkjaþrýstingsmæli við úrhleypibúnað.
Alltaf þegar ég virkja eh af segulrofunum resetast hann í smá stund og svo sýnir hann slatta vitlaust í kringum núllið. 4psi skv mæli eru ~7psi, 0psi = -1psi en er nokkuð réttur þegar ég er á sviðinu 12-29psi sem er hámarkið.
Þið megið kaupa þessa mæla af mér á 50% ebay verði ef þið viljið :D
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 19:06
frá StefánDal
jeepcj7 wrote:Flott verð að sjá hvað eru þessir að kosta hingað komnir?
Mig er farið að bráðvanta púst og boost mæla.
Eru búinn að skoða svona mæli? Þessi er á 170$. Boost mælir með digital skjá fyrir afgashitamæli og hitamæli.
Virkilega sniðugur kostur í japanska jeppa með takmarkað pláss í mælaborðinu. Eða bara ef maður nennir ekki að hafa mæla út um allt mælaborð.
http://www.ebay.com/itm/NEW-3IN1-WHITE- ... 9c&vxp=mtr
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 19:49
frá jeepcj7
Ja ég verð að viðurkenna að mig vantar ekkert mæli/a sem er ekki að mæla rétt en Stefán þekkir þú eitthvað til þessara mæla sem þú bendir á?
Bráðsniðugt að fá hitamæli fyrir skiptinguna í leiðinni.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 19:59
frá StefánDal
jeepcj7 wrote:Ja ég verð að viðurkenna að mig vantar ekkert mæli/a sem er ekki að mæla rétt en Stefán þekkir þú eitthvað til þessara mæla sem þú bendir á?
Bráðsniðugt að fá hitamæli fyrir skiptinguna í leiðinni.
Nei þekki þetta ekki persónulega. Sá umræðu um þessa mæla eða aðra svipaða á Land Cruiser 80 hópnum á facebook. Þar eru nokkrir sem eru komnir með svona mæla.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 20:42
frá Birgir R
Er að nota svona mæla og fynnst þeir allt í lagi, allavega miðað við verð, að mig minnir ca.3500kr mælir og hitanemi kominn heim til mín þegar ég keypti þá fyrir tveim árum, og virka enn.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 21:41
frá Arsaell
Ég er með svona glowshift boost mæli sem er líka með afgas hita og olíuþrýsting. Fínt að hafa 3 mæla í einum svo maður þurfi ekki að plastera þessu uppum allt. Hefur allavega virkað fínt hjá mér hingað til, þessi örugglega næstum 2 ár síðan ég verslaði hann. Eini ókosturinn að þetta er fahrenheit í stað celsius en maður er nú samt fljótur að venjast því að breyta gróflega á milli í hausnum.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 21:44
frá villi58
Setti svona Dragon mæla í sex bíla á síðasta ári og enginn hefur kvartað enn.
Re: Afgasmælar
Posted: 23.jan 2014, 23:47
frá baldur
Ég mæli mönnum eindregið frá því að kaupa afgashitamæla sem ekki muna hæsta gildi. Það er nú einusinni eina talan sem maður hefur áhuga á. Þegar búið er að þruma upp góða brekku er gott að geta litið á mælinn og gáð hvað hann fór hæst, því augnabliksgildið segir þér ekkert ef þú ert búinn að slá af.
Re: Afgasmælar
Posted: 24.jan 2014, 00:27
frá jeepcj7
Hvernig mæli myndir þú mæla með Baldur?
Re: Afgasmælar
Posted: 24.jan 2014, 11:43
frá sigurdurk
Væri ekki flottast að fara í svona mæla og vera með þetta allt í einum litlum skjá og sleppa þá við að hafa mælaborðið eins og gatasigti.
http://www.zada-tech.com/product/multi- ... ulti-gauge
Re: Afgasmælar
Posted: 24.jan 2014, 13:54
frá baldur
Svona:
https://www.merlinmotorsport.co.uk/p/st ... -st3513-14Eða eitthvað eins og þetta en ég myndi nota betri probe heldur en þann sem fylgir (og sú ráðlegging á við nánast alla þessa mæla sem seldir eru, með einstaka undantekningum)
http://www.ebay.com/itm/DIGITAL-EGT-THE ... b6&vxp=mtrÞetta eru próbarnir sem ég nota, sérpöntun í Miðbæjarradíó og svo á ég alltaf einhvern lager líka þar sem ég nota mikið af þessu.
http://uk.farnell.com/labfacility/xf-33 ... dp/4248211Þetta eru 3mm ryðfríir (310) próbar sem eru lausir við samsetningar fyrir innan festingu og eru mjög áreiðanlegir. Hef hreinlega aldrei lent í því að þeir hafi klikkað, sem er gott því ef svona stykki fer af stað eru góðar líkur á að ný túrbína verði ofar á innkaupalistanum heldur en annar prób. 900°C og 4 cylendra mótor öskrandi á 6000RPM tímunum saman ekkert vandamál. Ég hef reynt að nota 1,5mm próba af sömu gerð í púst en þeir þola ekki víbringinn til lengdar og brotna. Ég hef einnig verið að nota próba frá Omega sem eru sambærilegir.
Svona eru festingarnar, maður snittar eða sýður 1/8 múffu við pústgreinina og skrúfar þetta í.
http://uk.farnell.com/labfacility/fc-13 ... /dp/254642Það má komast upp með að nota lélega próba á N/A vélum og í púströri sem er ekki undir þrýstingi, en ef það er túrbína á mótornum þá viltu fyrst og fremst vita hitann fyrir framan túrbínu þar sem hitafallið yfir túrbínuna er misjafnt eftir álagi og þú hefur ekki hugmynd um hvort það er 100° eða 300° nema vita hver þrýstingurinn er í pústgreininni þannig að það er í raun ekki mikið gagn í því að vita hitann í púströrinu, það er hitinn við heitari hliðina á túrbínuhjólinu og við afgasventil sem er það sem skiptir máli.
Re: Afgasmælar
Posted: 24.jan 2014, 14:21
frá jeepcj7
Flottur þessi Stak skífumælir en helvíti dýr hann er með svona recall dæmi kann alltaf betur við skífumælir og finnst þeir flottari líka.
Re: Afgasmælar
Posted: 24.jan 2014, 14:38
frá baldur
Já það eru til ódýrari skífumælar með recall. Alveg niður í rúma 100 dollara.
Re: Afgasmælar
Posted: 25.jan 2014, 03:29
frá Hr.Cummins
Maður á ekki að spara í mælum, það er ALLTAF slæm hugmynd....
ISSPRO or NO-GO !
Re: Afgasmælar
Posted: 25.jan 2014, 23:54
frá storisteinn
Sælir.
Ég keifti þennan fyrir stuttu og er mjög ánægður með hann.
Virðist vera vandaður en hann kostaði um 20 þús hingað kominn með hraðflutning ( 4 dagar ) í gegnum Ebay.
http://www.deporacing.eu/catalogue/Stepper/view/32/Helstu kostir:
1.Geta séð hæðsta gildi sem hann hefur farið í.
2. geta látið hann vara þig við ofhita með ímsum mismunandi móti td. Blikkandi nál, Blikkandi ljóss, og hávært píp
3. Mjög þægileg dimanleg lísing með svötm fleti og uplístum tölum en ekki öfugt sem mér fynst oft pirrandi bjart.
4. Hægt að setja takkana annastaðar en á mælirinn þar sem auðveldara er að ná í þá.
Kveðja Örn