Síða 1 af 1
Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 22.jan 2014, 23:23
frá Járni

- verkefni ársins 2013.png (152.09 KiB) Viewed 5686 times
1. sæti með 98 atkvæði - Guðni Þór Sveinsson og vinur hans Snilli með
54" breytingu á Toyota Land Cruiser
2. sæti með 35 atkvæði - Hörður Sæmundsson með
54" breytingu á Chevrolet Avalanche
3. sæti með 21 atkvæði - Elmar Snorrason með
46" breyttan Chevrolet Suburban
Við viljum þakka öllum sem tóku þátt, hvort sem það var með skemmtilegum innleggjum, atkvæðum eða myndum og texta úr skúrnum.
Sérstakar þakkir fá Bílanaust fyrir almennilegheitin og styrkinn!
Þræðirnir sem notendur spjallsins tilnefndu til þátttöku voru 23 talsins og er því ljóst að við þurfum að breyta kerfinu sem síðan keyrir á en í núverandi mynd styður hún bara 25 möguleika í svona kosningu. Við erum handvissir um að í næstu keppni verða enn fleiri með.
Gróskan er mikil, flóran fjölbreytt og jeppasportið er langt frá því að vera dautt. Hipp hipp húrra!
Haft verður samband við sigurvegara vegna vinninga.
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 23.jan 2014, 21:20
frá Valdi B
ætla að óska vinningshöfum til hamingju með þetta! þið eigið það klárlega skilið allir saman ! :) og vonandi haldið þið áfram í eitthverju bralli og breytingum þó þið klárið þessi verkefni sem þið virðist ætla að klára á mettíma ! :D
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 23.jan 2014, 21:48
frá Big Red
Til hamingju vinningshafar. Þetta var skemmtilegt uppátæki og Jeppaspjallsíðan alltaf að verða betri og betri. Viljum senda hrós til aðstandenda síðunar einnig og þakka fyrir góða og skemmtilega síðu.
Takk fyrir okkur og atkvæðin sem við fengum einnig :D
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 23.jan 2014, 22:16
frá lex
Til lukku vinningshafar. Flott framtak hjá jeppaspjall.is
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 05.feb 2014, 20:00
frá gislisveri
Í dag fór fram látlaus verðlaunaafhending í verslun Bílanausts við Bíldshöfða.
Undirritaður tekur við fyrir hönd Snilla og Tilla sem ekki áttu heimangengt:

- ymislegt og verdlaun 026.JPG (177.74 KiB) Viewed 3830 times
Hörður Sæmundsson:

- ymislegt og verdlaun 027.JPG (181.44 KiB) Viewed 3830 times
Elmar Ofur Snorrason

- ymislegt og verdlaun 030.JPG (166.49 KiB) Viewed 3830 times
Alvörugefnir menn rembast við að brosa:

- ymislegt og verdlaun 032.JPG (166.65 KiB) Viewed 3830 times
Kann ég öllum þátttakendum, sigurvegurum og síðast en ekki síst styrktaraðilanum, bestu þakkir fyrir.
Við munum endurtaka leikinn í lok 2014 og reyna að gera enn meira fútt úr þessu.
Kv.
Gísli.
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 05.feb 2014, 20:04
frá hobo
Flott þetta, og til hamingju allir!
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 05.feb 2014, 21:14
frá sukkaturbo
Sælir félagar og takk en og aftur fyrir okkur kveðja Snilli og Tilli
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 05.feb 2014, 21:32
frá gislisveri
Elli minn, þú hefðir nú getað beygt þig í hnjánum, ég er eins og dvergur á myndinni.
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 05.feb 2014, 21:41
frá Járni
"Eins og"
Re: Verkefni ársins 2013 - Úrslit og uppgjör!
Posted: 05.feb 2014, 22:23
frá ellisnorra
Hahahaha góður Gísli.
Takk kærlega fyrir mig :)