Síða 1 af 1
6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 22.jan 2014, 17:44
frá atte
Getur einhver sagt mér hvort það er hægt að taka upp spíssa í 96 árg af GM 6.5 diesel turbo mótor
og þá hverjir gera það.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 22.jan 2014, 17:52
frá Hr.Cummins
Blossi... en þetta kostar....
mæli með þessu:
http://www.ssdieselsupply.com/p57_6.5_t ... r_set.htmlsendir spíssana út og biður þá um að senda nótu um claim með þessu heim, engir tollar !
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 01:28
frá stjanib
Sæll
Þegar ég var að vesenast í þessu á sínum tíma kom það út að það var ódýrara að kaupa nýja að utan, of dýrt að taka þetta upp hérna heima, ég endaði að kaupa stanadyne á ebay í flýti því mig vantaði þá strax, það eru engir tollar á þessu bara vsk. Leitaðu þér að bosch spíssum ef ekki myndi ég fara í stanadyne.
Það fara tvennar sögur með þessa marine spissa sem eiga að gefa auka hestöfl og hef ég lesið á spjallsíðum í kanahreppi að margir eru ekki ánægðir með ssdieselsupply sem Hr cummins er að benda á.
Það er mikill fróðleikur á þessari síðu
http://www.dieselplace.com/forum/ bara leita og lesið þig til um marine injectors og hvað þeir mæla með.
Ég get mælt með þessum
http://heathdiesel.com/ hef verslað við hann og er með top vörur, og svo klikkar ebaymotors yfirleitt ekki og rockauto.com.
K.v
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 10:52
frá Hr.Cummins
Heath Diesel er líka snilld... en marine spíssarnir frá SS Diesel Supply eru bara orginal Marine spíssar frá Stanadyne og því eru gæðin ekkert frábrugðin standard Stanadyne eins og þú bendir honum á að kaupa...
Þórir? með 46" K2500 bílinn er með kubb frá SS Diesel Supply og lætur vel að...
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 13:19
frá atte
Takk fyrir þetta strákar, er ekki hægt að láta testa spíssana og sjá hvort þeir séu í lagi.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 15:01
frá nicko
Hefuru prófað að tala við ljónstaði, kostuðu skíð og ingenting fyrir 2-3 árum hjá þeim, og já það er hægt að prufa þá.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 15:33
frá atte
Hringdi í þá í gær og þeir sögðu 74 þús STYKKIÐ sem mér finnst fulldýrt
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 15:38
frá atte
Hefur einhver látið taka upp svona spíssa
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 16:05
frá dazy crazy
ég hringdi í blossa/framtak varðandi að prófa spíssana í hiluxinu á sínum tíma, kostaði mjög lítið, talsvert undir 500kr. stykkið minnir mig en þori ekki að hengja mig uppá það.
prófaðu að hringja í þá bara.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 20:18
frá Hr.Cummins
dazy crazy wrote:ég hringdi í blossa/framtak varðandi að prófa spíssana í hiluxinu á sínum tíma, kostaði mjög lítið, talsvert undir 500kr. stykkið minnir mig en þori ekki að hengja mig uppá það.
prófaðu að hringja í þá bara.
Munar töluvert á Denso og Stanadyne/Bosch...
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 20:30
frá Stebbi
atte wrote:Hringdi í þá í gær og þeir sögðu 74 þús STYKKIÐ sem mér finnst fulldýrt
Djöfull er það mikið, þetta kostar frá 250 til 300 USD á ebay. $270 frá pensacola diesel.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 20:53
frá stjanib
Það er mikið um kína spíssa í gangi á netinu og eru þeir yfirleitt töluvert ódýrari, ég keypti þessa
http://www.ebay.com/itm/6-5L-Diesel-Tun ... 1b&vxp=mtr og voru þeir komnir heim til mín fyrir 85-90þús..
Getur ekki verið að þeir meintu 74 þús fyrir alla 8??
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 21:11
frá atte
Spurði alveg sérstaklega hvort hann væri ekki að meina öll 8 stykkin en hann sagði að samkvæmt síðasta innflutningi þeirra á þessum spíssum þá væri þetta stykkjaverð,
semsagt 74 þús stykkið.
Ég nefndi einmitt við hann að ég hefði séð spíssa á Ebay á ca 330 dollara og þá sagði hann að ef þeir flyttu þá inn fyrir mig að þá væri verðið á öllum 8 ca 100 þús þannig að einhver er nú álagningin hjá þeim.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 23.jan 2014, 21:13
frá atte
Svo hringdi ég í Framtak-Blossa í dag og þeir sögðust geta tekið þá upp fyrir ca 100 þús og þá er allt nýtt í þeim.
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 24.jan 2014, 05:12
frá Hr.Cummins
Marine... hættu að pæla í öllu öðru... það munar þokjalega að hada sama power og HMMVV
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 24.jan 2014, 08:00
frá atte
Er í lagi að setja þessa Marine spíssa í, það er nefnilega búið að breyta vélartölvunni eitthvað (meira power) það skiptir kannski engu bara ennþá meira power
Er ákveðinn í að kaupa bara spíssa á Ebay
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 24.jan 2014, 12:36
frá Hr.Cummins
atte wrote:Er í lagi að setja þessa Marine spíssa í, það er nefnilega búið að breyta vélartölvunni eitthvað (meira power) það skiptir kannski engu bara ennþá meira power
Er ákveðinn í að kaupa bara spíssa á Ebay
Ertu með afgashitamælir?
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 24.jan 2014, 12:37
frá atte
Nei en það stendur til að setja hann í
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 25.jan 2014, 12:09
frá Hr.Cummins
Bara fylgjast með afgashitamælir þegar að þú ert að sprauta og þá ertu alltaf safe... en menn hafa notað þessa marine spíssa með tölvukubbum í dually bíla sem draga 5th wheel án neinna vandræða.....
Planið hjá okkur feðgum er að taka 80hp kubbinn frá SS Diesel, Marine spíssa og downpipe upgrade.. seinna meit er fyrirhugað að kaupa auka Borg Warner GM4 og gera sequential twin turbo... þannig verður drive pressure haldið í lágmarki en afköstin aukin :)
Re: 6,5 GM Dísel spurning um spíssa
Posted: 25.jan 2014, 15:34
frá jeepson
Prufaðu að tala við Kistufell og sjá hvað þeir taka fyrir að gera upp spíssana.