Síða 1 af 1

Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 26.okt 2010, 23:26
frá kjartan.olafsson
Sælir.

Ég var að eignast Patrol 1995 og hann er ekki með stigbretti.

Hvar get ég fengið stigbretti á þessa týpu á góðu verði, má auðvitað vera notað.

Kv,

Kjartan

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 26.okt 2010, 23:34
frá haffij
Ég auglýsti til sölu stigbretti hérna um daginn.
viewtopic.php?f=32&t=1776

Ef þú hefur áhuga þá geturðu fengið þetta dót í skiptum fyrir nokkra svona. Image

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 27.okt 2010, 08:19
frá kjartan.olafsson
Sæll.
Passar þetta undir Patrol?
Kv,
Kjartan

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 27.okt 2010, 11:36
frá HHafdal
Tékkaðu á Bílabúð Benna hann er með þetta í metravís

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 27.okt 2010, 11:46
frá haffij
Sæll,

Augljóslega passa þessi rör sem ég var að bjóða þér ekki beint undir Patrol, ég efast stórlega um að þú fáir einhversstaðar "bolt on" kit tilbúið beint undir þinn bíl.

Ef þú skoðar myndirnar í auglýsingunni minni, þá sérðu að þar er mynd með helstu málum. Með þau að leiðarljósi gætir þú svo tekið þér málband í hönd og metið hvort þetta sé eitthvað sem hentar á þinn bíl.

Ef þú kaupir þér bretti hjá Benna, kemur þú alltaf til með að þurfa að smíða einhverjar festingar, alveg eins og með mín bretti.

Skoðaðu málið.

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 27.okt 2010, 13:00
frá kjartan.olafsson
Sæll.

Hvað get ég fengið þessi stigbretti á?

Kv,

Kjartan

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 27.okt 2010, 16:53
frá haffij
Þú varst of seinn, það var annar sem las auglýsinguna, kom og keypti þau.

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 27.okt 2010, 20:38
frá Hjörturinn
Mæli bara sterklega með því hef menn kunna að fara með skiftilykil að smíða þetta bara sjálfir, þetta er ekki flókin búnaður og hægt að fá efni og aðgang að búnaðnum sem þarf hjá t.d. málmtækni.
Er þetta ekki að kosta um 70þúsundkallinn nýtt?

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 29.okt 2010, 12:45
frá kjartan.olafsson
Sæll.
Ég veit ekki hvað þetta kostar. Mig langaði bara að heyra í ykkur með þetta.
Kv,
Kjartan

Re: Hvar er hægt að fá stigbretti á Patrol 1995 ódýrt?

Posted: 29.okt 2010, 13:20
frá Ofsi
http://www.facebook.com/group.php?gid=1 ... 867&ref=ts

Hérna er mynd af Patrol með ódýrri og einfaldri lausn á stigbrettum