Síða 1 af 1

Öndunarventill

Posted: 28.des 2013, 19:51
frá toni guggu
Sælir félagar hvar fæ ég öndunarventil á hásingu sá gamli er stíflaður og sprengir pakkdósina út.

kv Toni

Re: Öndunarventill

Posted: 28.des 2013, 21:04
frá Cruser
Bara rífa ventilinn í sundur og hreinsa, annars getu þú fengið nippil og slöngu hjá Barka.
Gangi þér vel
Kv Bjarki

Re: Öndunarventill

Posted: 28.des 2013, 21:06
frá Sævar Örn
Lausn mín á málinu var að fara í landvélar í kópavogi og fá fittings sem skrúfast í hásinguna og svo slöngu og hosuklemmu, slönguna leiddi ég svo upp og þræddi meðfram olíutankinum og upp í afturljós, þangað er vatnið held ég frekar lengi að komast

Re: Öndunarventill

Posted: 28.des 2013, 22:02
frá kolatogari
Sævar Örn wrote:Lausn mín á málinu var að fara í landvélar í kópavogi og fá fittings sem skrúfast í hásinguna og svo slöngu og hosuklemmu, slönguna leiddi ég svo upp og þræddi meðfram olíutankinum og upp í afturljós, þangað er vatnið held ég frekar lengi að komast



þú verður allavega farinn að hafa áhyggjur að einhverju allt öðru áður en vatnið fer þangað