Síða 1 af 1
Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 14:03
frá villi
Daginn. Hvar fæ ég þykkar kork eða pappa pakkningar?
Kv Villi
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 14:08
frá villi58
Fossberg, kanski Poulsen, kanski Fálkinn. Örugglega Kistufell.
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 17:53
frá villi
Takk fyrir þetta. Hafði samband við eitt af þessum fyrirtækjum og maður þyrfti bankalán til að versla pakkningu eins og mig vantar.
Kv Villi
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 17:57
frá villi58
Hafðir þú samband við Kistufell. Já helvítis ræningjar sem þurfa að borga af glerhýsunum.
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 17:59
frá villi
Nei fossberg. Í framhaldinu ákvað ég bara að finna þetta erlendis
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 18:03
frá villi58
Rétt hjá þér.
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 19:38
frá arni87
Bílabúð benna var með kork pakkningaefni, svo eru einhverjar vélsmyðjur með kork pakkningaefni í hillum hjá sér.
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 19:51
frá ellisnorra
villi wrote:Takk fyrir þetta. Hafði samband við eitt af þessum fyrirtækjum og maður þyrfti bankalán til að versla pakkningu eins og mig vantar.
Kv Villi
Upplystu okkur um einingaverðið sem þú fékkst uppgefið.
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 20:15
frá gaz69m
hvað vantar þig þykkar pakningar er með tvær rúllur af pakninga efni sem ég kem ekki til með að nota það eru 4 metrar á rúlluni fást á 7000 rúllan
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 20:34
frá villi
verðið var 22.000 fyrir 3mm x 92cm x 120cm. og 49.000 fyrir 4mm og sömu mál
ég þarf pakkningu sem er 50cm x 110cm og 3-4 mm á þykkt
Kv Villi
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 20:40
frá gaz69m
ok skal senda þér þykktar mál á morgun man þau ekki núna
Re: Kork pakkningar
Posted: 03.des 2013, 20:41
frá villi
Glæsilegt, takk fyrir
Re: Kork pakkningar
Posted: 04.des 2013, 12:35
frá sean
Villi getur þú ekkert notað þetta pakkningarefni sem ég lét þig hafa?
Re: Kork pakkningar
Posted: 04.des 2013, 15:09
frá villi
Nei, það er svo þunnt, myndi vilja þykkara og helst kork
Re: Kork pakkningar
Posted: 04.des 2013, 16:32
frá gaz69m
pakkningaefnið sem ég er með er ekki nema 2,5 mm
Re: Kork pakkningar
Posted: 04.des 2013, 18:48
frá villi
Það gæti alveg sloppið, en er þetta pappi eða korkur
Re: Kork pakkningar
Posted: 04.des 2013, 19:20
frá gaz69m
þetta er pappi en ekki korkur eins og ég hélt
Re: Kork pakkningar
Posted: 05.des 2013, 14:57
frá biturk
Hvað græða menn a kork pakkningum
Re: Kork pakkningar
Posted: 05.des 2013, 21:44
frá villi
Þær korkpakkningar sem ég hef séð eru mýkri en pappinn og er að leita eftir því
Re: Kork pakkningar
Posted: 05.des 2013, 22:56
frá Startarinn
Í hvað ætlaru að nota þetta?
Re: Kork pakkningar
Posted: 06.des 2013, 15:15
frá villi
Til að þétta lok á tanki
Re: Kork pakkningar
Posted: 06.des 2013, 15:34
frá villi58
Það er til stór flóra af efnum sem geta dekkað flest sem korkpakkningar gera. Kveðja!
Re: Kork pakkningar
Posted: 06.des 2013, 22:48
frá Startarinn
villi wrote:Til að þétta lok á tanki
Það er nokkuð stór tankur, það er t.d. gúmmípakkningarefni í öllum mannopum á tönkunum um borð hjá mér, ég hef ekki orðið var við leka á því