Síða 1 af 1
Re: Kerrur
Posted: 17.okt 2010, 19:20
frá Polarbear
hérna geturðu séð reglurnar í heild:
http://www.us.is/Apps/WebObjects/US.woa/swdocument/43/US.307+Eftirvagnar+og+tengit%C3%A6ki.pdfí stórum dráttum er þetta þannig að kerrur með heildarburðargetu (eiginþyngd + farmur) undir 750 kg eru ekki skoðunar- og skráningarskyldar.
undantekningin er ef þú smíðar þér "ferðavagn" (hjólhýsi eða tjaldvagn) sem eru alltaf skoðunar og skráningarskyldir óháð þyngd.
aðrar kerrur eru skoðunar- og skráningarskyldar og þurfa að vera búnar hemlum. Auk þess þarftu að borga "aðvinnslugjald" vegna smíðinar sem er c.a. 13% af efni og áætluðum vinnustundafjölda. já, ríkið kann að plokka :)
:) lalli
Re: Kerrur
Posted: 17.okt 2010, 19:26
frá Einar
Seinast þegar ég vissi mátti kerra vera óskráð ef heildarþyngd (kerra + hlass) er 750kg eða minna (þeim mun þyngri sem smíðin er þeim mun minna má hún bera). En það er eitt sem fáir virðast athuga og það er að með óskráða kerru má einungis aka upp að 60km/kl. hraða, eftir það er hægt að taka þig fyrir of hraðan akstur.
Ef þú ætlar yfir þessi 750kg mörk þarf kerran að vera skráð og með bremsum.
Re: Kerrur
Posted: 17.okt 2010, 21:10
frá birgthor
Nenniru að benda mér á hvar þú sér lög eða reglugerð sem segir að þú megir ekki aka yfir 60 km/klst ef hún er óskráð.
Kv. Biggi
Re: Kerrur
Posted: 17.okt 2010, 21:50
frá Einar
Hvað um gildandi umferðarlög, 38 grein?
"Ökuhraði bifreiðar með eftirvagn, sem er án hemla og meira en 750 kg að heildarþyngd,
eða óskráð tengitæki má aldrei vera meiri en 60 km á klst."
Umferðarlög:
http://www.althingi.is/lagas/nuna/1987050.html
Re: Kerrur
Posted: 18.okt 2010, 05:55
frá Einar
Það skiptir eiginlega ekki máli, spurningin er bara hvað þú mátt setja í hana, ef þú smíðar kerru sem er sjálf 750kg má hún bera 0kg, ef hún er 400kg þá má hún bera 350kg, ef hún er 300kg þá má hún bera 450kg o.s.fr. Það er aldrei hægt að stoppa þig með það að ofhlaða kerruna þína, það er bara hægt að sekta þig ef þú ert stoppaður með hana þannig.
Svo er þetta líka spurning um bílinn, sumir minni bílar mega ekkert draga svona kerru fullestaða. Konan mín á Ford Fiesta, sá bíll má bara draga óbremsaða kerru upp að 500kg, ef hann á að draga 501-750kg þá þurfa að vera bremsur á kerrunni.
Re: Kerrur
Posted: 18.okt 2010, 17:01
frá Stebbi
bluetrash wrote:Enn þá er ég að pæla.
Ég veit ekki með burðargetu hennar enn er nú alveg ágætlega sterkbyggð.
Hvernig á maður að segja til um heildarþyngd? Það er þá hvort hún fari yfir þessi 750kg mörk?
Þú ræður því sjálfur, ef þú ert með kerru sem er 150kg og tæknilega ber 1200kg þá geturðu sleppt því að skrá hana og kallað hana 750kg kerru. Ef þú þarft aftur á móti að nota hana reglulega til að bera meira en 600kg þá myndi borga sig að setja í hana bremsur og skrá hana til að lenda ekki í veseni ef þú ert stoppaður. Þú átt valið.
Re: Kerrur
Posted: 19.okt 2010, 00:00
frá Gulli J
Síðast þegar ég vissi mátti ekki draga annað ökutæki (bíl) hraðar en á 30km hraða.
Re: Kerrur
Posted: 19.okt 2010, 07:55
frá SiggiHall
Gulli J wrote:Síðast þegar ég vissi mátti ekki draga annað ökutæki (bíl) hraðar en á 30km hraða.
30kmh með spotta, 50kmh með stöng
Re: Kerrur
Posted: 19.okt 2010, 13:41
frá ellisnorra
SiggiHall wrote:Gulli J wrote:Síðast þegar ég vissi mátti ekki draga annað ökutæki (bíl) hraðar en á 30km hraða.
30kmh með spotta, 50kmh með stöng
60 með beisli? (spurning, ekki fullyrðing)
Re: Kerrur
Posted: 27.feb 2013, 22:34
frá sonur
Vekja gamlan þráð
Ég er búinn að vera að hugsa um að smíða mér kerru sem getur borið bíl, aðalega fólksbíla
sem eru að slefa í 1200kg, ég ætla mér að hafa bremsur á henni en hef verið að spá hvort
það skipti svo mikklu máli að hafa hana tveggja öxla þar sem ég myndi aldrei taka kerruna
aftanaf bílnum sem er að draga hana ef að bíll er á kerrunni..
Hér kemur svo spurningin, held að það sé best fyrir mig að skrá hana en veit einhver hvort
ég þurfi að láta mæla hana út í dag eða vera með fullkomnar via proof teikningar af kerrunni með
nákvæmum málum og suðumeistara pappíra í höndunum þegar hún yrði skráð?
Re: Kerrur
Posted: 27.feb 2013, 22:45
frá kjartanbj
þú þarft að láta teikna hana upp , þarft að gera grein fyrir öllum kostnaði, þarft í raun að borga tvöfaldan skatt , því þú þarft að borga skatt af því efni sem fer í kerruna eftirá.. þó þú hafir borgað skatt
við efniskaupin í upphafi, þetta er bara mjög erfið og leiðinleg framkvæmd, sumir hafa verið að redda sér með því að fá gamlar skráningar af kerrum og eitthvað
þarft að reikna allt inní smíðina, Vinnu, efni og allt sem tengist henni og borga skatt af því.. þetta er bjánalegt allt saman
Re: Kerrur
Posted: 27.feb 2013, 22:51
frá sonur
Whut!!!
jæja, ég kemst yfir ódyrt efni í rauninni svart þannig ég veit ekki hvernig maður á að fara að gefa
það upp því þetta er ekki nýtt efni og var keypt árið 2000, er með ramma sem var smíðaður
200x450m og hjólabúnaður sem er tæknilega reddy bara smíða beislið og sjóða hjólabúnaðinn á
og grindina á það, tæki max einn dag svo henda henni í sprautun og ef maður kæmi svo uppá
skrifstofu hjá þeim með þessa sögu fengi maður bara einn á hann?
Einhver nýlega búinn að græja kerru og getur sagt manni bara hvort þetta sé þess virði?
fólk fer bara bakvið kerfið ef kerfið hækkar endalaust alt samann!
Re: Kerrur
Posted: 27.feb 2013, 22:56
frá kjartanbj
held það skipti engu máli, verður að skila raunhæfum tíma við vinnu, ALLA vinnu, og síðan af öllu, efni skiptir ekki hvort það sé gamalt, þá myndu allir bara segja að efnið sitt hefði verið gamalt og eitthvað
Re: Kerrur
Posted: 15.júl 2013, 01:19
frá stefantb
Vegna:
http://www.althingi.is/lagas/nuna/1987050.htmlÉg tel að hámarkshraði sé 80 km á klst fyrir óskráðan eftirvagn sem er með léttari en 750 kg með hámarksfarmi. Hér vísa ég í muninn á skilgreiningunni eftirvagn og tengitæki.
Eftirvagn:
Ökutæki, sem hannað er til að vera dregið af öðru ökutæki og aðallega er ætlað til fólks- eða vöruflutninga.
Tengitæki:
Ökutæki, sem hannað er til að vera dregið af öðru ökutæki og er ekki eftirvagn. Enn fremur hjólhýsi og tjaldvagn.
38. gr. Ökuhraði [hópbifreiðar],1) sem er meira en 3500 kg að leyfðri heildarþyngd, má aldrei vera meiri en 90 km á klst.
Ökuhraði annarra bifreiða, sem eru meira en 3500 kg að leyfðri heildarþyngd, má aldrei vera meiri en 80 km á klst.
[Ökuhraði bifreiðar með eftirvagn eða skráð tengitæki má aldrei vera meiri en 80 km á klst.
Ökuhraði bifreiðar með eftirvagn, sem er án hemla og meira en 750 kg að heildarþyngd, eða óskráð
tengitæki má aldrei vera meiri en 60 km á klst.]2)
[[Ráðherra]3) getur sett reglur um að ákveða megi sérstakan lægri hámarkshraða vélknúins ökutækis en segir í 37. gr. og 1.–4. mgr. þessarar greinar ef þess er þörf vegna hönnunar ökutækisins.]1)
Re: Kerrur
Posted: 16.júl 2013, 06:52
frá kjartanbj
ef þú dregur óskráða kerru þá er hámarkshraðinn 60km/klst .. en að einhver fari eftir því.. það er annað mál
Skráð kerra 80km/klst.. að einhver fari eftir því er líka annað mál
ég hef alveg lent í því oftar en einu sinni að fólk með stærðarinnar hjólhýsi sem má ekki fara hraðar en 80km/klst taki framúr mér og stingi mig af
það má heldur ekki gleyma því að yfirleitt eru dekk undir svona vögnum og kerrum ekki í fullri stærð og þola ekki svona hraðan akstur með þyngdina sem
svona vagnar eru oft , mjög oft yfirhlaðnir miðað við þyngd sem svona á að bera, fólk er tildæmis oft að troða dóti inn í fellihýsi og þyngja það oft yfir hámarks leyfða þyngd
og draga það svo á 100+ , það kallast að bjóða hættunni heim
Re: Kerrur
Posted: 27.apr 2014, 21:23
frá sonur
Jæja önnur pæling
Núna er ég kominn með flotta kerru sem er 310cm á lengd 135cm breydd
með skráningu og vegur 280kg, þegar hun var smíðuð var gert ráð fyrir að
yrðu bremsur á henni en fór aldrei svo langt, hun er eins öxla og smíðuð ´95
það kemur hvergi fram hvað hun má bera en reikna með að það sé 750kg
Er mikið mál að fá henni breytt í skráningu fyrir meiri þyngd ef ég
smíða á hana bremsur og beyslið með því eða kemur þetta út eins og
ég sé bara að smíða nýja kerru og þarf að fara í gegnum allt ferlið aftur?
vantar að bera upp að 1500kg og meiga nota hana löglega
Re: Kerrur
Posted: 27.apr 2014, 21:35
frá Polarbear
ég held þú getir bara sett á hana bremsur, stansað leyfilega heildarþyngd (að eigin geðþótta) í beislið á henni og farið í breytingarskoðun ef hún er á númerum á annað borð.
Re: Kerrur
Posted: 28.apr 2014, 18:14
frá sonur
Polarbear wrote:ég held þú getir bara sett á hana bremsur, stansað leyfilega heildarþyngd (að eigin geðþótta) í beislið á henni og farið í breytingarskoðun ef hún er á númerum á annað borð.
já ég er að vona að það sé svo auðvelt ferli :D
Re: Kerrur
Posted: 17.jún 2014, 19:57
frá Rúnarinn
Aðeins að vekja þennan þráð aftur.
Er einhver hérna sem hefur skráð gamlan tjaldvagn sem aldrei hefur verið skráður??
Re: Kerrur
Posted: 18.jún 2014, 16:30
frá Rangur
Það eru komin einhver ár síðan, en mig minnir að ekki hafa annað þurft en vigtarvottorð; restina hjálpuðu þeir með á skoðunarstöðinni.
kv.
ÞÞ
Re: Kerrur
Posted: 19.jún 2014, 10:29
frá Rúnarinn
Var verksmiðju númer á vagninum hjá þér eða þurftir þú að græja það sjálfur??