Síða 1 af 1

hjalp

Posted: 23.nóv 2013, 14:20
frá mikki
sælir spjallverjar er með yamaha yz 250 tvigengis hjol nokkuð gamallt buið að standa i 2-3 ar rykur i gang en er að brenna oliu sem er a motornum i miklu magni einhvað sem ykkur dettur i hug ??

Re: hjalp

Posted: 23.nóv 2013, 14:30
frá ivar
Tvígengis krossari er yfirleitt ekki með olíu á mótor heldur er henni blandað í bensínið.
Settu bara nýtt bensín með nýrri tvígengisolíu blandaðri við t.d. 1/40?

Re: hjalp

Posted: 23.nóv 2013, 14:33
frá bragig
Í þessum tvígengismótorum er önnur sveifaráslegan oftast í smurbaðinu þar sem þú bætir á mótorinn, og við þessa legu er líka pakkdós svo olían renni ekki yfir í botnskálina þar sem sveifarásinn er. Ef þessi pakkdós er farin að leka þá fer mótorolían yfir í botnskálina og þá fer mótorinn að brenna þessari olíu með.

Re: hjalp

Posted: 23.nóv 2013, 16:10
frá mikki
takk kærlega var buinn að hugsa uti þessa pakkdos en vildi fa alit annara D: