Síða 1 af 1

46" springur í uppáfelgu íkveikju

Posted: 22.nóv 2013, 12:46
frá sonur
sælir

Hef ekki hugmynd hvar þetta ætti heima en fanst alveg tilvalið að henda þessu hingað inn
til að sýna hvað gerist ef þú gasar of mikið inní dekk og hefur dekkið aflveg uppvið jörðina
svo að loftið kemst ekki eins hratt inní felguna og þá kemur boom

46" dekk sýnist mér
http://www.youtube.com/watch?v=Q-3U-TRkJx8

Passa sig þarna úti, þessi kunni þetta ekki alveg

Re: 46" springur í uppáfelgu íkveikju

Posted: 22.nóv 2013, 15:02
frá jongud
Hvað var þessi hálfviti að pæla!
Dekkið er með "beadlock" öðrum megin þannig að það þarf ekkert að sprengja þetta á!

Nóg er að festa dekkið á "beadlockið" og láta það snúa niður, og láta kubba undir dekkið þannig að þeir séu undir utanverðum bananum þannig að "beadlockið hangi í lausu lofti.
Síðan stendur einhver feitur (eigandinn passar sæmilega þarna) ofaní felgunni þannig að "beadlockið þrýstist nær jörðu.
Þá ætti innri felgubrúnin að þétta við dekkið og þá dælir maður lofti í.

Re: 46" springur í uppáfelgu íkveikju

Posted: 22.nóv 2013, 18:06
frá sonur
jongud wrote:Hvað var þessi hálfviti að pæla!
Dekkið er með "beadlock" öðrum megin þannig að það þarf ekkert að sprengja þetta á!

Nóg er að festa dekkið á "beadlockið" og láta það snúa niður, og láta kubba undir dekkið þannig að þeir séu undir utanverðum bananum þannig að "beadlockið hangi í lausu lofti.
Síðan stendur einhver feitur (eigandinn passar sæmilega þarna) ofaní felgunni þannig að "beadlockið þrýstist nær jörðu.
Þá ætti innri felgubrúnin að þétta við dekkið og þá dælir maður lofti í.


Herðu þú segir nokkuð, ég var ekki búinn að taka eftir að þetta eru bedlock felgur og hann virðist
vera að reyna að blása það upp frekar en að fá það uppá felguna því það er á felgunni fyrir bara loftlaust?

hvað eru svona felgur að ganga á í dag 15" með bedlock búnaði?

Re: 46" springur í uppáfelgu íkveikju

Posted: 22.nóv 2013, 18:21
frá Stebbi
Svo stútar gaurinn felguni með þessu líka. Eitt 46" dekk og beadlock felga í molum kostar smá aur.

Re: 46" springur í uppáfelgu íkveikju

Posted: 22.nóv 2013, 21:06
frá Izan
Sælir

Ég skil ekki alveg hvað hann var að baksa því að þetta virkar ekki á mig eins og dekkið hafi ekki verið á felgunni, ætli hann hafi verið að reyna að pumpa í? Verst er svo að fá ekki að sjá skemmdirnar, hvað gerðist í raun og veru. En ég er sammála því að þetta eru grautarhausar.

Kv Jón Garðar