Síða 1 af 1

Viltu koma út að mödda?

Posted: 14.okt 2010, 13:08
frá hobo
Nú þegar heimur versnandi fer, jöklarnir bráðna og snjórinn hættir að koma þurfum við að horfa í aðrar áttir. Hvað með þetta?

Image

Þetta finnst rauðhálsum vestanhafs mjög gaman þótt ég botni ekkert í því..

Re: Viltu koma út að mödda?

Posted: 14.okt 2010, 14:32
frá Stebbi
Ég er til enda almennt með rauðan háls þegar á reynir. Má maður hafa haglabyssuna í afturglugganum?

Re: Viltu koma út að mödda?

Posted: 14.okt 2010, 23:06
frá Þorri
þetta er alveg þrælgaman þangað til að það kemur að því að þrífa kvikindið þá lækkar hamingjustuðullinn töluvert.

Re: Viltu koma út að mödda?

Posted: 14.okt 2010, 23:57
frá -Hjalti-
Þorri wrote:þetta er alveg þrælgaman þangað til að það kemur að því að þrífa kvikindið þá lækkar hamingjustuðullinn töluvert.


Sé ekki að malbiks jeppamenn á stífbónuðum Land cruserum láti sjá sig í þessu þó þeir fengu borgað fyrir það haha

Re: Viltu koma út að mödda?

Posted: 16.okt 2010, 09:30
frá hobo
Hvað með klettaklifur?
Krefst kannski aðeins meiri hæfni en drullumallið og bílarnir "aðeins" teygjanlegri.

Image
Image
Image

Annars er ég þannig gerður að ég myndi frekar, ef mér gæfist sá kostur, aka framhjá hindrunum en að fara yfir þær.
En það væri kannki öðruvísi ef maður sæti í einum svona..

Re: Viltu koma út að mödda?

Posted: 16.okt 2010, 12:26
frá Startarinn
Stebbi wrote: Má maður hafa haglabyssuna í afturglugganum?



Það er skilyrði frekar en ókostur!!