Síða 1 af 1

Jeppabókin 1946

Posted: 18.nóv 2013, 11:11
frá villi58
Ég er hérna að fletta bók sem var gefin út 1946, þar er tekið fyrir jeppi með fjórhjóladrifi - Model CJ - 2A.
Heitir bara Jeppabókin og er í bláu bandi.
Það er ansi margt sem er svipað og í bílum í dag, auðvitað búið að betrumbæta, mjög áhugaverð bók.
Hugsa að margir mundu vilja eiga þessa bók en fæst varla í dag. Væri gaman að ljósrita hana og setja inn einhversstaðar þar sem þið gætuð nálgast hana, ekki viss um hvernig væri best að standa að því, allar ráðleggingar vel þegnar!