Síða 1 af 1
Bolta og ró-bar. Hvar er besti barinn
Posted: 17.nóv 2013, 17:29
frá johannes256
sæl.
ég er að leita að 16mm ró með fínum gengjum. ekki standard 2mm heldur líklega 1,5 mm gengjum. Hvar er hægt að fá svona rær ??
Kveðja
johannes
Re: Bolta og ró-bar. Hvar er besti barinn
Posted: 17.nóv 2013, 17:54
frá Sævar Örn
Þú ert væntanlega að tala um að innanmálið sé 16mm?
Það er eitthvað úrval af fínsnittuðu á gamla Caterpillar lager Heklu, bæði stórt og smátt
Ef þú ert hinsvegar að tala um 12mm ró með 16mm haustaki og fínu snitti þá er algengt að maður sjái slíkt í evrópskum fólksbílum t.d. í stýrisendum og ballanstangarendum og spindilkúlum og fæst slíkt í bílaumboðunum líka
Svo er Sindri með gott úrval en þó ekki mikið útfyrir standard snitti og sverleika að minni reynslu fenginni
Re: Bolta og ró-bar. Hvar er besti barinn
Posted: 17.nóv 2013, 18:03
frá jeepcj7
Það er örugglega helst að finna 16mm fína bolta og rær hjá Fossberg eða Sindra en gæti líka verið að þú finnir eitthvað hjá Wurth.