Síða 1 af 1

46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 17:09
frá armannd
góðan dag var að spekulera hvað hafa margir hiluxar verið á 46" á íslandi og hefur einhver reynslusögur af því?

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 19:14
frá Elli m
hvaah er 44'' ekki að gera sig?

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 19:31
frá Hfsd037
Þori að veðja á að það sé algjörlega tilgangslaust, 44" er yfirdrifið nóg.

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:01
frá Stebbi
Hfsd037 wrote:Þori að veðja á að það sé algjörlega tilgangslaust, 44" er yfirdrifið nóg.


Ég mann eftir því að hafa heyrt einhvern segja við mig fyrir rosalega mörgum árum að 44" væri algjör vitleysa á Hilux, 36" væri bara alveg nóg fyrir svona léttan bíl. :)

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:12
frá jeepcj7
Akkúrat en eru samt ekki fáir hiluxar ef einhverjir á 46" megas reyndar 4runner var á 46" og sagan sagði að það hefði ekki virkað sem skildi súkkan hans Guðna er talsvert léttari en hilux og er víst alveg að virka á 46" miðað við það ætti 49" að vera fín undir hilux.;O)

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:13
frá Stebbi
jeepcj7 wrote:.......miðað við það ætti 49" að vera fín undir hilux.;O)


Djöfull hljómar það vel. Nú verður guðni að fara að hrækja þessum krúser saman svo að hann geti byrjað á því að smíða 49" Hilux, helst '79 módelið þvi hann er svo léttur.

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:18
frá -Hjalti-
Bergur Bergsson er að setja 46" undir Hiluxinn sinn , hann er reyndar með 4Runner boddy

Image

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:51
frá armannd
já ég er allavega veikur að prófa þetta í þágu vísindana hvaða felgur ætli séu bestar og hefur eingin prófað þetta hérna?

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:52
frá sukkaturbo
Sælir félagar alltaf gaman að prufa eitthvað öðruvísi og er ég einn af þeim kveðja Guðni

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 20:56
frá armannd
guðni er þetta gáfuleg hugmynd hjá mér eða á ég bara að halda mig við 44"??

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 21:03
frá jeepcj7
Ég er með þyngri bíl reyndar og er með 16" breiðar felgur virkar alveg en ég er nokkuð viss um að uppá flot og hvernig dekkið leggst er betra að vera með breiðari felgur.Mín afsökun er að svona er bíllinn kominn í 250 cm. á breidd og ég bjóst við að þurfa jafnvel beadlock utaná felgurnar og þá yrði ég kominn í 255 cm.sem er lögleg hámarksbreidd.
Hugmyndin er góð go4it.

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 21:35
frá Magnús Ingi
Djöfull verður gaman að hringkeyra þig á litlu 38¨ í vetur:)

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 22:47
frá sukkaturbo
armannd wrote:guðni er þetta gáfuleg hugmynd hjá mér eða á ég bara að halda mig við 44"??

Láttu 44 duga kveðja Guðni

Re: 46"hilux

Posted: 28.okt 2013, 23:48
frá AgnarBen
Haugslitin 46" er að svínvirka undir Cherokee XJ hjá GummaJ þannig að af hverju ekki undir Hilux ?

Það þarf auðvitað að gera þetta á vitrænan hátt, nota amk hálfslitin dekk, vera með rétta gírun, kram sem þolir þetta og svo stela þessi dekk haug af hestöflum en ef menn eru sáttir við það þá er það bara lagó .....

Re: 46"hilux

Posted: 29.okt 2013, 08:24
frá armannd
Afhverju gudni

Re: 46"hilux

Posted: 29.okt 2013, 10:46
frá Bawse
armannd wrote:Afhverju gudni


þetta var farið að teygja á boltonum sem halda drifkögglinum í en það var þegar súkkan var á 46" en hún var á toyota hásingum.

Re: 46"hilux

Posted: 29.okt 2013, 12:31
frá jongud
Bawse wrote:
armannd wrote:Afhverju gudni


þetta var farið að teygja á boltonum sem halda drifkögglinum í en það var þegar súkkan var á 46" en hún var á toyota hásingum.


VÁ!
Það segir sitt um styrkinn í restinni af hásingunni!

Re: 46"hilux

Posted: 29.okt 2013, 16:28
frá armannd
já ég er með sæmilega hásingar

Re: 46"hilux

Posted: 30.okt 2013, 02:58
frá Kiddi
Ef þig langar þá er um að gera að prófa... en fjöðrunin mun versna af því að þarna ertu kominn með meiri ófjaðraða þyngd ca 20 kg á hvert hjól og þá fara hásingarnar og dekkin að ráða meira ferðinni og boddýið svona, fylgir eftir en ræður ekki ferðinni lengur. Semsagt það sem gerist er að boddyið fer að ganga meira til í ójöfnum. En þetta eru allt saman kostir og gallar og svo gera menn bara það sem þá langar til að gera.

Re: 46"hilux

Posted: 30.okt 2013, 09:30
frá armannd
já ég er allavega búin að kaupa dekk og er að bíða eftir felgum eru til einhverjar myndir hvernig best er að skera þaug til að mýkja og ná góðu gripi?

Re: 46"hilux

Posted: 30.okt 2013, 10:10
frá juddi
Svona skar ég þetta en þarna á eftir að skera hliðarkubba betur


http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=30&t=6960

Re: 46"hilux

Posted: 31.okt 2013, 15:28
frá armannd
okei eru til einhvað meira af myndum bara skoða allar útfærslur

Re: 46"hilux

Posted: 31.okt 2013, 16:55
frá Eiður
Ármann, Þú ættir að skera þetta eins og Ástþór Atli er með þetta undir bjarna

Re: 46"hilux

Posted: 01.nóv 2013, 18:13
frá armannd
hvernig er það

Re: 46"hilux

Posted: 01.nóv 2013, 22:12
frá Eiður
skal reyna að redda myndum af því á næstunni

Re: 46"hilux

Posted: 01.nóv 2013, 22:27
frá sukkaturbo
Sælir var með 20" breiðar felgur á Sukkunni og hún vigtaði um 1700kg með öllu. Skar slitna 46"og vigtaði það um 70 kg á 20" breiðum stálfelgum Sukkan dreif á þessu og flaut vel en þetta tekur toll af drifrás og afli og mikil hætta á jeppaveiki og rási ég setti spindihalla í 12 gráður með því að snúa liðhúsum en það dugði ekki til var vondur á vegi rásaði og skalf ef farið var upp fyrir 60 km. En alltaf gaman að gera eitthvað nýtt og prufa.kveðja Guðni

Re: 46"hilux

Posted: 25.nóv 2013, 11:24
frá armannd
Eg er komin med undir hja mer litur vel ut getid skodad a tradnum hilux44" i smidum