Síða 1 af 1

Veturinn kemur!

Posted: 23.okt 2013, 20:32
frá hobo
Nú fer veturinn að ganga í garð, og þá er mikilvægt að kynda í hverjum öðrum með góðum myndböndum eða myndum.

[youtube]http://youtu.be/OHvvviPthiQ[/youtube]

Re: Veturinn kemur!

Posted: 24.okt 2013, 12:14
frá hobo
Það væri ekki amarlegt að fara á Vatnajökul í svona blíðu.

[youtube]http://youtu.be/82_jtvGo-Rg[/youtube]

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 10:08
frá Árni Braga
Manni er farð að hlakka til

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 10:30
frá hobo
Á hvaða faratæki ert þú núna Árni?

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 10:41
frá Árni Braga
Var að fá mér einn lítinn og sætan lc 90 38".

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 10:51
frá hobo
Nú hva þá erum við orðnir samkeppnishæfir :)

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 14:59
frá hobo
Eru menn með markmið í vetur? T.d Langjökull, Grímsfjall, Skjaldbreiður, tja eða Úlfarsfell?
Eða bara komast út úr skúrnum??

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 15:13
frá villi58
Bóna og skipta um afturhjólalegur enn og aftur, Hilux.

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 15:29
frá Styrmir
Setja bara Allvöru hjólalegur og málið er dautt

Re: Veturinn kemur!

Posted: 27.okt 2013, 15:37
frá villi58
Styrmir wrote:Setja bara Allvöru hjólalegur og málið er dautt

Allar ráðleggingar vel þegnar, hvað þarf að gera og hvað kostar svona dæmi ýtarlegar útskýringar vel þegnar. Kveðja! VR
Má senda á ES eða villi58@talnet.is

Re: Veturinn kemur!

Posted: 30.okt 2013, 17:26
frá hobo
Image

Landmannalaugar
Image

Re: Veturinn kemur!

Posted: 30.okt 2013, 19:17
frá Árni Braga
þetta er farið líta svolítið spennandi út.

Re: Veturinn kemur!

Posted: 30.okt 2013, 20:06
frá Doror
Markmiðið er að fá eitthvað af þessum mönnum sem eiga jeppa sem að mig langar í til þess að selja mér og komast á jökul í fyrsta skipti í vetur.

Re: Veturinn kemur!

Posted: 30.okt 2013, 20:52
frá Ragnare
Musso er orðinn svaka spenntur fyrir því að fara í fjórhjóladrifið og minnka loftið í dekkjunum. Maður verður að fara í þetta mál fyrir greyjið....

Re: Veturinn kemur!

Posted: 30.okt 2013, 21:57
frá kjartanbj
Það verður farinn snjóalaga leiðangur um helgina það er klárt mál :)

Re: Veturinn kemur!

Posted: 30.okt 2013, 23:56
frá StefánDal
Bein útsending úr Búðardal. Hér var hægt að festa sig í dag (ef maður vandaði sig).
http://www.budardalur.is/vefmyndavel

Re: Veturinn kemur!

Posted: 31.okt 2013, 00:13
frá -Hjalti-
StefánDal wrote:Bein útsending úr Búðardal. Hér var hægt að festa sig í dag (ef maður vandaði sig).
http://www.budardalur.is/vefmyndavel


Enn gaman ( kaldhæðni ) greinilega skemmtilegur vinnudagur á morgun. Best að taka framm keðjugallann

Re: Veturinn kemur!

Posted: 31.okt 2013, 21:27
frá StefánDal
-Hjalti- wrote:
StefánDal wrote:Bein útsending úr Búðardal. Hér var hægt að festa sig í dag (ef maður vandaði sig).
http://www.budardalur.is/vefmyndavel


Enn gaman ( kaldhæðni ) greinilega skemmtilegur vinnudagur á morgun. Best að taka framm keðjugallann


Var að koma að sunnan. Fljúgandi hálka frá Bröttubrekku og inn alla Dali.