Síða 1 af 1
vantar í Wrangler
Posted: 06.okt 2010, 00:00
frá ivarhauks
Sælir, er einhver hérna sem veit um orginal drif að aftan í Wrangler 91árg með 4.0 HO, dana 35 að aftan?
Einnig er ég að spá með ballansstöngina að framan á fjaðrabíl, á á ég að halda henni eða flegja henni?
Ég hef rifið hana undan öllum klafabílum sem ég hef átt en þekki ekki hvernig það er á fjaðrabílum???
Kv Ívar
S:8205658
Re: vantar í Wrangler
Posted: 06.okt 2010, 22:50
frá Fordinn
Ívar burt med ballans stöngina!!!!!!!
Re: vantar í Wrangler
Posted: 07.okt 2010, 11:44
frá ivarhauks
Hún er farinn, nennti ekki að bíða eftir svari:)
Re: vantar í Wrangler
Posted: 07.okt 2010, 12:39
frá Einar
Af hverju rífa menn þær alltaf úr? Það er ástæða fyrir því að þær eru þarna og hún er sú að gera aksturseiginleika bílsins betri á vegum og á flestum jeppum það er einfaldasta mál í heimi að setja á þær búnað til að aftengja þær með einu handtaki þegar þær fara að flækjast fyrir.
Svoleiðis búnaður hefur fengist í marga áratugi fyrir ýmsar bíltegundir og er það einfaldur að það ætti ekki að taka laghentann mann mikið lengri tíma að smíða hann heldur enn tekur að rífa dótið úr.
Re: vantar í Wrangler
Posted: 07.okt 2010, 15:15
frá ivarhauks
Menn rífa þetta örugglega bara úr því það er svo auðvelt:) En ég prufa þetta allavega svona, ef mér líkar það ekki þá er líka lítið mál að henda henni undir aftur:) Það er líka ástæða fyrir því að menn skipta út orginal dekkjunum fyrir stærri dekk þó bíllinn sé stöðugri úti á vegum á 31":)
Re: vantar í Wrangler
Posted: 07.okt 2010, 17:20
frá jeepcj7
Það eru einhver ódýrustu aukakílóin að losna við að fjarlægja þessa massívu teina.
Á til ef þig vantar D 35 undan grand með 3.73-1 fyrir lítið.