Síða 1 af 1
Skálpi - húsafell - færð
Posted: 18.okt 2013, 22:40
frá Johnboblem
Hefur einhver farið þetta nýlega? Spà að skella mér í fyrramálið.
Er jökullinn alveg fær uppá sprungur?
Re: Skálpi - húsafell - færð
Posted: 21.okt 2013, 00:05
frá kjartanbj
ég persónulega mæli ekki með ferðum á jöklinum , það hefur nánast ekkert snjóað og örugglega opnar sprungur útum allt þarna, það er líka bara ekkert gaman að keyra jökla þegar þeir eru bara klaki
Re: Skálpi - húsafell - færð
Posted: 21.okt 2013, 08:12
frá ivar
Ég flaug yfir skálpa fyrir c.a. 2 vikum og þá var jökullinn ber langt upp í hlíðar.
Tek undir með síðasta ræðumanni. Eitt er að hafa skoðun á því hvað er öruggt og hvað ekki en hitt er hversu gaman þetta er. Bara vera undir það búinn að keyra í hörðum ís með fullt af litlum spurnum sem tefja en valda ekki endilega hættu.