Síða 1 af 1

skrúfaðir naglar

Posted: 09.okt 2013, 17:51
frá Óli ágúst
Er enhver að flytja inn svona nagla http://www.gripstuds.com/Truck.php

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 09.okt 2013, 18:08
frá sukkaturbo
Erum búnir að vera með þetta í dekkum hér á Sigló og hefur þetta reynst mjög vel. Þetta var keypt í Kletti

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 09.okt 2013, 18:20
frá ivar
Oftast þegar ég hef skoðað þetta hefur þetta reynst of dýrt. Hef frekar nelgt dekkin með venjulegum nöglum sitthvorn veturinn og plokkað þá úr eftir sumarið.
Gæti samt verið að þetta fari að verða í boði ódýrara.

Hef prófað skrúfaða nagla á krossara og reyndist mér ágætlega hvað varðar grip en ég átti það til að týna nöglum í krossaranum eins og gengur og gerist en fanst það dýrt :)

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 09.okt 2013, 19:01
frá Fordinn
ebay strákar ebay

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 09.okt 2013, 19:38
frá flækingur
klettur er með þessa nagla en man ekki hvernig verðið er hjá þeim.

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 09.okt 2013, 19:49
frá Karvel
Bílaverið ísafirði er með þessa nagla.

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 10.okt 2013, 18:36
frá PéturSt
Klettur er með rosalega flóru af þessum nöglum og eitt verð yfir allar týpur. Hringið inn og talið við Dóra jóns. Flottir naglar sem virka og fín verð,

Re: skrúfaðir naglar

Posted: 10.okt 2013, 18:47
frá Óskar - Einfari
Það má endilega pósta verðunum hèrna inn ef einhver tèkkar á þessu :)