Síða 1 af 1
Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 06.okt 2013, 01:33
frá Hrannifox
Sælir spjallverjar, mér vantar smá hjálp mér vantar vetrardekk undir pajeroinn hjá mér, 33'' eða 35'' valið stendur um Hercules traildigger MT eða BFgoodrich MT
hef góða reynslu af goodrich gegnum árin undir jeppunum mínum. En langar að forvitnast hvort eitthver hafi prófað þessi hercules dekk
http://jeppadekk.is/search/og
http://benni.is/Dekk/Jeppar/Vetrar-heil ... odrich_MT/hef einga reynslu né heyrt neitt um þessi hercules dekk þannig endilega deilið reynslu ef þið hafið prófað þau.
Annars endar maður bara með 35'' goodrich
Þessi dekk eiga eingöngu að notast á veturnar er með annan sumargang.
kv, Hrannar
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 06.okt 2013, 14:42
frá snöfli
Hef ekki reynslu en horfi eftri review úr Ameríkuhreppi ef ekki til aðrar upplýsingar. Ekki síst til að forðast þau dekk sem eru mjög léleg í vetrarfærð
Þesis tvö svipuð
http://www.offroaders.com/tech/AT-MT-Ti ... T-Tire.htmhttp://www.offroaders.com/tech/AT-MT-Ti ... -TA-KM.htm
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 06.okt 2013, 18:05
frá Hrannifox
þakka fyrir þetta, já virðast vera mjög svipuð dekk miðað við þessar síður
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 07.okt 2013, 09:00
frá Siggi_F
Sæll, ég er með Hercules A/T sem ég nota sem vetrardekk, enn. Það eina góða við þau er að þau slitna ekki, búinn að nota þau fjóra vetur og sér ekki á þeim, meira að segja allir naglar fastir í þeim einn. Allt annað er neikvætt.
Þau er hörð og hál, hreinsa sig illa í snjó og almennt lélegt grip. Þar fyrir utan leiðinleg keyrsludekk miðað við önnur A/T dekk..
Mín eru míkróskorin í miðju og nelgd, eftir fyrsta veturinn lét ég tvöfalda neglinguna til að reyna að fá eitthvað betra grip í hálku. Það sem pirrar mig líka er að miðju kubbarnir ná lengra niður en hliðarkubbarnir, þannig að ég þarf að minnka loftið í dekkjunum til að tryggja að naglarnir nái niður. Hef einu sinni hleypt úr þeim og fannst þau ekki traustvekjandi þannig heldur.
Þannig, að á hverju vori ér ég ákveðinn í því að naglhreinsa og nota þetta sem sumardekk, en er enn að bíða eftir því að gömlu Godrich A/T sumardekkin gefi upp öndina svo ég geti réttlætt að henda þeim, en þau eins og Herculesinn endast og endast.
En Hercules A/T eru ekki góð vetrardekk, Maxxis M/T hef ég heyrt að séu mjög góð.
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 07.okt 2013, 09:14
frá Hrannifox
skil þig, kannski maður skoði þessi maxxis dekk eitthvað af ráði.
hef bæði verið með bfgoodrich AT nelgt og óneld yfir vetratímann undir sukku og svo einum cherokiee virkuðu bara fínt
svo prófaði ég seinasta vetur undir hilux sem ég á bfgoodrich MT km2 vél mikcroskorin og þau virkuðu fáranlega vél í snjó og hálku
var rosalega ánægður með þau sem vetrar dekk!
En sem keyrsludekk á malbikinu þá tja fyrir þá sem leggja veghljóð eitthvað fyrir sig nei
Eitthverjir sem geta komið með comment um þessi maxxis MT dekkin? hvernig er að hleypa úr ef maður lengdir i þannig aðstæðum?
eins hef ég heyrt að bfgoodrich fari ílla við úrhleypingu ? semsagt springi í hliðunum að innanverðu
Þakka svarið
Kv H
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 08.okt 2013, 20:56
frá haffiamp
Siggi_F wrote:Sæll, ég er með Hercules A/T sem ég nota sem vetrardekk, enn. Það eina góða við þau er að þau slitna ekki, búinn að nota þau fjóra vetur og sér ekki á þeim, meira að segja allir naglar fastir í þeim einn. Allt annað er neikvætt.
Þau er hörð og hál, hreinsa sig illa í snjó og almennt lélegt grip. Þar fyrir utan leiðinleg keyrsludekk miðað við önnur A/T dekk..
Mín eru míkróskorin í miðju og nelgd, eftir fyrsta veturinn lét ég tvöfalda neglinguna til að reyna að fá eitthvað betra grip í hálku. Það sem pirrar mig líka er að miðju kubbarnir ná lengra niður en hliðarkubbarnir, þannig að ég þarf að minnka loftið í dekkjunum til að tryggja að naglarnir nái niður. Hef einu sinni hleypt úr þeim og fannst þau ekki traustvekjandi þannig heldur.
Þannig, að á hverju vori ér ég ákveðinn í því að naglhreinsa og nota þetta sem sumardekk, en er enn að bíða eftir því að gömlu Godrich A/T sumardekkin gefi upp öndina svo ég geti réttlætt að henda þeim, en þau eins og Herculesinn endast og endast.
En Hercules A/T eru ekki góð vetrardekk, Maxxis M/T hef ég heyrt að séu mjög góð.
Ég vona að þú hafir þá þrifið þau reglulega með dekkjahreinsi...það bjargar mörgum dekkjum sem eru orðin pökkuð af tjöru... ég hef heyrt mjög margar sögur af hálum vetrardekkjum og eru flestir sem keyra um á fólksbílum ekkert að spá í þessu og blóta dekkjunum...
En goodrich er alltaf klassískt, mæli allavega með þeim
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 09.okt 2013, 08:22
frá Siggi_F
Jú, það hafa farið nokkrir lítrarnir af dekkjahreinsi á þau og gera það reglulega yfir veturinn:) annars eru þau enn verri.
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 10.okt 2013, 18:39
frá PéturSt
Sælir, hefur einhver hérna prófað þessi dekk í 33-35" sem vetrardekk
http://benni.is/Dekk/Jeppar/Vetrar-heil ... ountry_MT/Flott munstur spurninghvort þetta séu hörð dekk eða
Re: Dekkjapælingar fyrir veturinn
Posted: 12.okt 2013, 00:19
frá Hrannifox
Fór í dag á dekkjaverkstæðið mitt einsog ég vill kalla það.
Mín ósk var goodrich MT mickróskorið og í 35'' hann átti það ekki til og tjáði mér að þessi dekk væru orðin miklu dýrari helduren síðast gangur sem ég keyfti af honum og var mjög! ánægður með.
En sannfærði mig um að skoða maxxis Buckshot MT 35'' hann gaf þeim nokkuð góða dóma, hefur allavega hingað til ekki sagt neitt rugl við mig, þannig ég fór að hans orðum
og keyfti einn gang. fékk þau á mjög svo sanngjarnan prís, mikcroskorin og undirkomin.
þannig núna er bara að prufa og sjá hvernig þessi dekk eru. þau fara undir á mánudaginn næstkomandi.
eins meiga menn alveg koma með reynslu sína af þessum dekkjum maxxis þá :)
Kv, Hrannar