Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 04.okt 2013, 18:59
				frá oddur
				Á mánudaginn er að hefjast þættir á youtube sem gæti verið áhugavert að fylgjast með
Þættirnir heita Motor Trend Channel, Four Wheeler's Top Truck Challenge . 
Kynning er hér 
http://www.youtube.com/watch?v=t7xRfVnsMccEinnig hef ég gaman af þáttunum Dirt Every day. 
http://www.youtube.com/playlist?list=PLGvTvFzdMg_Mlk222V60pPCj_uohycX_P 
			 
			
				Re: Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 08.okt 2013, 02:48
				frá StefánDal
				Ég ætlaði einmitt að henda þessu hingað inn um daginn. 
Það er ansi margt skemmtilegt á MotorTrend rásinni á youtube. Í uppáhaldi hjá mér eru Road Kill þættirnir. Ekki beint jeppa tengt en alveg hrikalega fyndnir þættir.
http://www.youtube.com/watch?v=JEcbwvNa ... 16CECEA3BC 
			 
			
				Re: Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 08.okt 2013, 08:55
				frá dadikr
				Road kill eru frábærir þættir.
Og fyrst við erum komnir útfyrir efnið þá er þessi náungi frábær, Cold War Motors: 
http://www.youtube.com/user/coldwarmotorsSérstaklega mæli ég með seríunni Will it run? þar sem allt er reynt til að fá gömul bílflök í gang (t.d. þessi um 50 árgerðina af plymouth 
http://www.youtube.com/watch?v=kpyMYcLw-0A)
 
			 
			
				Re: Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 08.okt 2013, 16:04
				frá StefánDal
				Já það er margt skemmtilegt á youtube. Ég er búinn að fylgjast með rás sem heitir "groutaone" í tvö ár. Það er kanadískur bóndi sem er með hana. Hann er að smíða buggy með svaka fjöðrun og Hayabusu mótor, vesenast í mótorhjólum og fjarstýrðum bílum, búa til sýna eigin kyndingu fyrir hús og híbýli og margt fleira. 
http://www.youtube.com/channel/UCbcAUzRKwwsnUu183ATJ_Aw 
			 
			
				Re: Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 09.okt 2013, 11:50
				frá Halldorfs
				http://www.youtube.com/watch?v=HsywuMBHJDE hér er hægt að sjá alla keppnina, reyndar tekið upp af áhorfanda.
 
			 
			
				Re: Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 09.okt 2013, 14:08
				frá svavaroe
				Stórkostlegt ! :)
			 
			
				Re: Amerísk jeppamenning - Þættir
				Posted: 10.okt 2013, 13:44
				frá RunarG
				Bara gaman að horfa á þetta!