Síða 1 af 1
					
				Hvað hefur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 01.okt 2013, 20:41
				frá siggi40
				góðan dag fólk. ég er alltaf að velta fyrir mér hinni stóru spurningu, hvað þarf ég að hafa í bílnum þegar ég fer á fjöll?
þá verkfæralega séð og öriggisbúnað... hvað havið þið í ikkar bílum?
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 01.okt 2013, 20:55
				frá logimar
				Verkfæralega séð er ég með öll helstu verkfæri sem nýtast mér í viðgerðir á bílnum.  Splittatangir, topplyklasett, skrúfjárn, vice grip o.s.frv.  Dekkjaviðgerðasett, aukafelgubolta, aukaventla, hettur og pílur.  Álkarl, skóflu og teygjuspotta, (20 metra).  Ég er með legusett í framhjólin, hjöruliðskross, stýrisenda.  Viftureim.  Álpoka til að halda á sér hita í neyðartilfellum, prímus og pott, hitabrúsa, endurskinsvesti til að bregða yfir utanyfirfatnað, aukafatnað.  Þetta er svona það helsta sem ég man eftir svona í fljótheitum, get ábyggilega bætt við ef ég nenni að nota hausinn.  L.M.
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 01.okt 2013, 21:29
				frá TWIN 2
				hér er listi sem ég fann einhverntímann á f4x4.is minnir mig
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 01.okt 2013, 21:42
				frá joisnaer
				hér er annar svona þráður
viewtopic.php?f=43&t=7506 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 02.okt 2013, 21:14
				frá kjartanbj
				Allt sem Logi er með er ég með í mínum bíl fyrir utan álpokan og krossa
er með flest verkfæri til að bjarga mér með með flestar viðgerðir sem er hægt að gera á fjöllum , aukalegur, 6 kúlulið, nafstút , rær á nafstút
er ekki með hjöruliðskrossa , ríf frekar skapt úr ef svo ólíklega vill til að kross fari í ferð, yfirfer allt svona fyrir ferðir
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 03.okt 2013, 09:51
				frá armannd
				nó af landa og neftóbaki svo manni verði ekki kallt
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 31.okt 2013, 13:00
				frá Skottan
				Sniðugt að hafa, ef við á, eina auka hráolíusíu meðferðis líka...
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 04.nóv 2013, 11:00
				frá kjartanbj
				Eftir ferð helgarinnar þá bætir maður gashitara/brennara á listann
Tæplega 20 gráðu frosti um morguninn þá var bendixin í startaranum hjá mér frosinn fastur, þurfti að liggja undir bílnum og hita startarann og berjann til að fá hann til að starta
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 10.nóv 2013, 19:26
				frá Lindemann
				Þetta með bendixinn ætti nú ekki að vera vandamál ef hann er smurður með góðri feiti annað slagið.
Aftur á móti er það rétt að það er mjög gott að hafa einhvern gasbrennara með sér, það getur þurft að þýða ýmislegt í miklu frosti.
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 11.nóv 2013, 01:03
				frá lecter
				einginn breyttur fjalla  jeppi Ætti að fá breytingar skoðun án veltibúrs  og 4 punta beltis  og ættu að vera meðhönlaðir sem kepnis bilar likt og rally bilar það er raunverulega einginn munur á þessu að minu mati  ,,hvað gerist svo þegar þessir jeppar fara á toppinn  og búið að skipta út hásingum vélum auka millikassar og fult af fólki  billinn orðin 1-1,5 ton meira en upprunalega  toppurinn heldur þessu ekki það mun koma upp slik slys i framtið ,,
ég vil velti búr numer 1.2.3.45..... annað skiptir eingu máli
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 14.nóv 2013, 15:22
				frá baldur
				Vandamálið við 5 punkta beltið (Aldrei 4 punkta, ert betur varinn af 3 punkta heldur en 4.) er að þú ert svo lengi að setja það á þig, og þegar það er bras þá ertu sífellt að fara inn og út úr bílnum og belti sem er vesen að setja á sig eru meiri líkur en minni á að þú hættir að nota það við þær aðstæður. 
Veltibúr veitir falskt öryggi ef rörin eru staðsett þannig að þú getir hugsanlega, mögulega rekið höfuðið í þau í veltu. Þar sem að fjallajeppar hafa nú ekki verið að lenda í veltum á svona miklum hraða eins og kappakstursbílar gera þá er í raun ekki verri lausn að styrkja póstana sem bera þakið heldur en að sjóða frístandandi veltibúr inn í bílinn.
			 
			
					
				Re: Hvað hefur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 14.nóv 2013, 15:25
				frá ellisnorra
				Hvað er svona slæmt við 4 punkta belti?
			 
			
					
				Re: Hvað hefur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 14.nóv 2013, 16:20
				frá baldur
				elliofur wrote:Hvað er svona slæmt við 4 punkta belti?
Þau halda þér bara ekki í stólnum, leitast við að lyftast upp á maga og svo rennurðu undir beltið og hlýtur innvortis meiðsli. Ef þú strekkir axlarólarnar nógu vel til þess að halda þér föstum við stólinn þá virkar mittisólin ekki eins og hún á að gera og öfugt. 5/6 punkta beltin eru með þennan auka strappa sem passar í fyrsta lagi að mittisbeltið haldist í réttri hæð og í öðru lagi að þú getir ekki runnið undan beltinu.
 
			
					
				Re: Hvað hefur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 14.nóv 2013, 16:45
				frá ellisnorra
				Okei, meikar sens. Ég hef aldrei notað 4 punkta belti en ég á það hinsvegar til í skúrnum ónotað (og sennilega komið framyfir dagsetningu). Ég hef notað 5 punkta belti talsvert og það heldur manni alveg djöfull föstum en það er tímafrekt að spenna það.
			 
			
					
				Re: Hvað hefur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 14.nóv 2013, 18:46
				frá biturk
				Aldrei hef ég upplifað eða heirt um þetta með 4 punkta belti og þó hef ég notað slíkt talsvert og meira að segja rúllað bíl með þannig á meiri ferðinni
Og meðan ég man
Smíði á veltibúri er bara eins og annað í þessu....ef það er ekki vandað til verka þá getur það verið varasamt en ætti samt að vera í öllum meira breittum bílum og bólstra rörin þar sem þau eru of nálægt höfði
Ekki að það skipti máli því í mörgum bílum ertu ekki langt frá body með hausinn og ekki er sett útà það
			 
			
					
				Re: hvað hevur þú í bílnum á fjöllum?
				Posted: 14.nóv 2013, 23:41
				frá kjartanbj
				Lindemann wrote:Þetta með bendixinn ætti nú ekki að vera vandamál ef hann er smurður með góðri feiti annað slagið.
Aftur á móti er það rétt að það er mjög gott að hafa einhvern gasbrennara með sér, það getur þurft að þýða ýmislegt í miklu frosti.
legg það ekki í vana minn að rífa startarann úr reglulega :) þetta er eina skiptið sem þetta hefur komi fyrir hjá mer og var svosem ekki lengi reddað, en leiðinlegt samt að liggja undir bilnum í tæplega 20 stiga frosti