Síða 1 af 1
Rafmagnsverkfæri frá ameríkuhreppi
Posted: 26.sep 2013, 00:36
frá villi
Daginn, hefur einhver hérna pantað rafmagnsverkfæri ( borvélar, hjólsagir og þessháttar ) erlendis frá? og þá hvaðan. Get ekki alveg ákveðið hvar ég á að panta :) vantar meðmæli með einhverjum þarna úti
Kv Villi
Re: Rafmagnsverkfæri frá ameríkuhreppi
Posted: 26.sep 2013, 00:52
frá olei
Gott að gleyma því ekki að rafmagnsverkfæri frá ameríkuhreppi nota gjarnan 110v spennu á 60hz.
Re: Rafmagnsverkfæri frá ameríkuhreppi
Posted: 26.sep 2013, 01:03
frá villi
Já grunaði það. Enda fer póstur á þá sem ég er að pæla í að kaupa af til að ath voltatölu :)
Re: Rafmagnsverkfæri frá ameríkuhreppi
Posted: 26.sep 2013, 04:52
frá Rodeo
Hleðsluvélar er hægt að kaupa því þá þarf bara að redda sér réttu hleðslu tæki eða litlum spennubreyti. Stærri snúrutæki borgar sig ekki að kaupa af því að þau eru fyrir annan straum.
Hafa ekki annars einhverjir lennt í því að svona detti ofan í ferðatöskur hjá þeim á heimleið frá Bandaríkjunum?
Þyrfti ekki mikið til að borga miðann. Flott dewalt sett í byggingarvörubúð úti
http://www.lowes.com/pd_254286-70-DCK59 ... facetInfo= Svipað sett (vísu enn flottara)
http://www.sindri.is/is/netverslun/17166 og sparnður upp á rúm 100þúsund.
Skoðaðu
www.lowes.com og
www.homedepot.com fyrir handverkfæri,
www.sears.com fyrir skiptilyklasett og
http://www.harborfreight.com/ fyrir kínaverkfæri á lágu verði.
Re: Rafmagnsverkfæri frá ameríkuhreppi
Posted: 26.sep 2013, 08:39
frá jongud
Það er þá vissara að hleðslutækin séu til !
Ég keypti mér 18-volta Lithium rafhlöður í Dewalt tækin mín og fékk 110v hleðslutæki með.
Hafði augun opin fyrir 220V hleðslutæki en notaði 220-110v kína-spennubreyti fyrst.
Hann klikkaði á endanum og steikti hleðslutækið.
Þá sat ég uppi (í byrjun kreppu) með 2 tómar rafhlöður.
Það skipti svo sem ekki máli, þar sem ég átti nikkel-rafhlöðurnar ennþá og notaði tækin lítið.
Svo keypti ég hleðslutæki frá Bretlandi fyrir skömmu en þurfti að fara með lithium-rafhlöðurnar í sérfræðimeðferð af því að þær höfðu tæmst umfram það sem rofabúnaðurinn inni í þeim leyfði.
Þannig að mitt ráð er að halda sig við rafhlöðutæki þar sem örugglega er til 220-volta hleðslutæki, og ef maður vill snúrutæki þá er betra að stóla á Ebay.co.uk (breska Ebay)