Síða 1 af 1

Musso sjálfskipting vesen

Posted: 24.sep 2013, 13:36
frá Heiðar Brodda
Sælir vinnufélagi minn er með musso disel sjálfskiptan og vandamálið lýsir sér þannig að overdriveið far af honum og þá tekur hann bara 3 gí, hann keypti hann frá rvk og var á leið í egilsstaði og var orðinn leiður á þessu og hrærði í einhverjum vakúm leiðslum í húddinu og tengjum og þá virkaði bílinn vel og gerði í nokkra daga en svo allt í einu virkar bara 3 gír og tekur ekki einu sinni 1.gír fyrri eigandi lét tölvulesan og þeir vildu meina að þetta væri einhver skynjari en gerðu aldrei neitt við....með von um greinagóð svör kv Heiðar Brodda

Re: Musso sjálfskipting vesen

Posted: 24.sep 2013, 13:50
frá Heiðar Brodda
Eigandinn setti jeppan í lágadrifið og þá fór hann að skipta sér eðlilega hvort það er tilfallandi vitum við ekki ??? kv Heiðar Brodda

Re: Musso sjálfskipting vesen

Posted: 24.sep 2013, 15:31
frá jongud
Athuga ALLAR vakúmslöngur!

Svona græja;
Image

Er ansi hátt á óskalistanum hjá mér næst á eftir sjálfum jeppanum.
Þetta er hægt að nota til að blæða bremsur, kúplingar, tékka á EGR ventlum, aflbremsum, og slöngum.

Þekki einn sem var í veseni með Land-Rover Discovery, gekk aldrei almennilega. Á endanum var bilunin rakin til hraðastillisins (cruise-control) þar sem vakúmslanga lak.
Það var þá farið í að skipta út ÖLLUM vakúmslöngunum.
Gekk eins og klukka eftir það.

Re: Musso sjálfskipting vesen

Posted: 26.sep 2013, 15:51
frá Heiðar Brodda
Þetta er ekki vacum skipting og skillst að þetta sé nemi á olíverkinu sem er ekki til í umboði og verður ekki til.... en af því að þetta eru bens vélar er hægt að fá varahluti í vélarnar í öskju